Óskar Bjarni: Ég var búinn að segja strákunum að þetta færi í oddaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2009 19:15 Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Mynd/Arnþór
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var ekki ánægður með frammistöðu sinna manna í þriðja úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla sem fram fór á Ásvöllum í dag. „Þeir voru að spila betur í dag. Við byrjuðum vel og vorum flottir í upphafi leiks en markvarslan var miklu betri hjá þeim í dag og þeir voru grimmari í varnarleiknum," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals eftir leikinn. Sóknarleikur Vals var oft vandræðalegur og Haukarnir voru í framhaldinu duglegir að refsa Valsliðinu með hraðaupphlaupsmörkum. „Þeir voru að komast inn sendingar og stela af okkur boltanum. Sóknarleikurinn var þungur hjá okkur og hann gekk ekki upp í dag. Við náðum ekki að hjálpa þeim nægilega af bekknum. Við bjuggumst við þeim í 5:1 vörn en það var ekki mikill tími til að æfa á milli leikja og við náðum ekki að keyra kerfin alveg nægilega vel í dag," sagði Óskar Bjarni. "Við ætlum að koma hingað aftur. Ég sagði við strákana fyrir einvígið að þetta færi í oddaleik og jafnvel vítakeppni. Eftir að við töpuðum fyrsta leik þá var í farinn að giska á að þetta færi 3-1 því það var svo mikið blóð á tönnunum hjá okkur. Við náðum ekki að fylgja alveg eftir þessum miðvikudegi sem var flottur," sagði Óskar Bjarni sem vill gera lítið úr mun á frammistöðu liðsins hvirt það er að spila á heima- eða útivelli. "Ég blæs á þessa umræðu um útivallargrýlu. Þetta er bara spurning um það hvernig við spilum. Þeir eru þá bara svona flottir á heimavelli og við eigum þá bara það inni að vinna þá hér," sagði Óskar Bjarni.
Olís-deild karla Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira