Í skoðun að rýmka lánskjör bankanna Björgvin Guðmundsson og Ingimar Karl Helgason skrifar 19. mars 2008 08:00 Seðlabankinn „
Við höfum hugað að því að bankarnir fái rýmri kjör hjá Seðlabankanum. Ekki í neinum stórum stíl þó. Við höfum átt náin samtöl við forystumenn bankanna, en ekki er búið að ljúka þeim öllum," sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri í samtali við Markaðinn í gær. Hann vildi ekki greina nánar frá samskiptum sínum við forystumenn bankanna, en þeir funduðu í Seðlabankanum í fyrradag. Bolli Bollason, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, kallaði í gær saman samráðshóp til að fjalla um fjármálastöðugleika í landinu. Krónan hélt áfram að hríðfalla gagnvart erlendum gjaldmiðlum fram eftir degi. Margir sem Markaðurinn talaði við sögðu að opinberir aðilar yrðu að grípa inn í núverandi aðstæður. Bolli segir að farið hafi verið yfir stöðuna og þróun undanfarinna daga. Ýmsar hugmyndir séu ræddar á þessum fundum, sem haldnir séu reglulega. Hópnum er ætlað að vera ráðgefandi en taki ekki ákvarðanir um aðgerðir. Það sé á forræði ráðuneyta eða stofnana. Í hópnum eiga sæti auk Bolla ráðuneytisstjórar fjármála- og viðskiptaráðuneytisins, forstjóri Fjármálaeftirlitsins og framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans. Geir Haarde forsætisráðherra sló á allar hugmyndir um aðkomu ríkisvaldsins við þessar aðstæður á fjármálamörkuðum eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun. Hann sagði að gengislækkun krónunnar væri ekki komin á það stig að það kallaði á sérstakar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hópur fulltrúa norrænna seðlabanka, sem eiga að vinna saman að viðbrögðum við fjármálaáfalli í banka sem starfar í fleiru en einu norrænu ríki, kom saman fyrir viku. Ef fjármálaáföll eiga sér stað breytist þessi hópur í viðbragðshóp óski einhver seðlabanki eftir því. Tryggvi Pálsson, fulltrúi Seðlabanka Íslands í hópnum, segir þá stöðu ekki uppi. Davíð Oddsson segir að Seðlabankinn sjái ekki að gengislækkun krónunar undanfarið hafi verið fyrir atbeina erlendra aðila. Viðskiptabankarnir hafi sankað að sér erlendum gjaldeyri til að verja eiginfjárstoð sína. „Við vorum hlynntir því, því við vildum ekki að eiginfjárstoðin veiktist," segir seðlabankastjóri.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Vara við aðskotaefni í tei Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira