Innlent

Eva Joly er á leið til landsins

Föstudaginn 19. október n.k. mun Eva Joly halda fyrirlestur í Silfurbergi í Hörpu í boði Samtaka fjárfesta og viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.

Í tilkynningu segir að fyrirlesturinn, sem hefst kl. 12, fjalli um kreppuna í banka- og fjármálaheiminum. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Að loknu erindinu mun Eva Joly svara fyrirspurnum.

Fundarstjóri er Bolli Héðinsson formaður Samtaka fjárfesta.

Eva Joly var sem kunnugt er ráðgjafi Sérstaks saksóknara í rannsókn bankahrunsins. Hún hætti störfum hér á landi í október 2010. Hún var frambjóðandi í frönsku forsetaskosningunum fyrr á þessu ári .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×