Innlent

Hverastrýtur virðast til staðar í Steingrímsfirði

Myndin er á vísindavef HÍ.
Myndin er á vísindavef HÍ.
Hverastrýtur virðast vera í Steingrímsfirði á Ströndum, í grennd við Hólmavík og Drangsnes, en hingað til hafa þær aðeins fundist á tveimur stöðum í Eyjafirði.

Á vefnum Strandir.is segir að skipstjóri á litlum fiskibáti hafi nýverið fengið brot úr hverastrýtu upp með veiðarfærunum. Af stærð opanna í brotinu, eða steininum megi ráða að mikið heitavatnsstreymi sé á þessum slóðum.

Brotið kom upp við svonefndan Tangahrygg, suður af Grímsey í Steingrímsfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×