Yfir fjögur þúsund manns hafa kosið utan kjörfundar BBI skrifar 16. október 2012 10:58 Myndin er tekin fyrir forsetakosningarnar í sumar.
Þegar hafa 4.323 einstaklingar á landinu greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs. Miðað við aðrar atkvæðagreiðslur telst það ekki sérlega mikið en erfitt er að spá fyrir um endanlega kjörsókn út frá fjölda utankjörfundaratkvæða. Af þeim 4.323 atkvæðum sem hafa skilað sér af landinu öllu voru 2.809 atkvæði greidd í Reykjavík. Það sem af er degi hefur 31 einstaklingur greitt atkvæði í Reykjavík. Að sögn Bergþóru Sigmundsdóttur, sem sér um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar, helst ásóknin nokkuð stöðug milli daga og engar raðir hafa myndast við kjörstaði eins og gerðist í forsetakosningunum í sumar. „Nei, þetta er bara ósköp eðlileg þróun. Það voru reyndar yfir 500 manns sem kusu í gær," segir hún. Þau 2.809 atkvæði sem greidd hafa verið í Reykjavík á þessum tímapunkti eru ekki sérlega mörg miðað við aðrar atkvæðagreiðslur. Á sama tímapunkti höfðu reyndar ekki nema 1.765 manns kosið í stjórnlagaþingskosningunum. Hins vegar höfðu 5.142 kosið í Icesave kosningunum og 7.058 manns kosið í forsetakosningunum í sumar. „Við getum náttúrlega ekki metið endanlega kjörsókn út frá utankjörfundaratkvæðum. Við vitum ekki hve mikið hlutfall kjósenda greiðir atkvæði utankjörfundar," segir Bergþóra og bendir til dæmis á að hlutfall þeirra sem greiddu atkvæði utan kjörfundar var mjög hátt í forsetakosningunum, m.a. vegna sumarleyfa. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram í Laugardalshöllinni sem verður opin frá klukkan tíu á morgnanna til klukkan tíu á kvöldin fram að kjördegi.
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira