Þingmenn fóru á Hraunið BBI skrifar 16. október 2012 12:55
Nefndarmenn í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis voru uppnumdir eftir heimsókn á Litla Hraun í morgun að sögn formanns nefndarinnar. Nefndarmenn fengu sérstaka kynningu á því hvernig starfsfólk Litla Hrauns hefur varið 50 milljóna króna fjárframlagi sem hugsað var til að efla öryggisþætti fangelsisins. „Það er alveg ævintýralegt hvað þau hafa gert mikið fyrir litla fjármuni," segir Björgvin G. Sigurðsson, formaður nefndarinnar, og nefnir til að mynda móttökuhús, leitarhlið og girðingu í kringum fangelsið. „Svo voru þau að sýna okkur hvað þau hefðu getað gert fyrir tvö slík framlög til viðbótar næstu ár. Svo að nú stendur upp á okkur að tryggja að þau fái úr næstu og þarnæstu fjárlögum," segir Björgvin og ætlar að beita sér sérstaklega fyrir því að það takist. Björgin segir að með framlögunum sem óskað verður næstu tvö ár verði bæði komið í veg fyrir smygl inn í fangelsið og gert nær ómögulegt að brjótast þaðan út „sem er tiltölulega auðvelt í dag". Nefndarmennirnir skoðuðu einnig aðstöðuna og starfsemi fangelsisins. „Við vorum til dæmis lóðsaðir um meðferðarganginn. Tilkoma hans fyrir fjórum árum gjörbreytti fangelsinu," segir Björgvin og telur að hann hafi stuðlað að mikilli betrun. „Þetta starf er að skila miklum mannbótum og miklum árangri og meðferðargangurinn hefur haft ævintýraleg áhrif." Björgvin segir að nefndarmenn hafi verið uppnumdir eftir heimsóknina enda þekki þeir starfsemina misvel og hafa margir hverjir ekki heimsótt fangelsið oft áður.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Sjá meira