Skýrsla skrifuð í lest veldur látum 27. nóvember 2005 08:00 Mikilvægt gagnsæi. Það er mikilvægt að vel sjáist bæði inn og út á fjármálamarkaði. Það er auðveldara að kveikja orðróm, en að kveða hann niður. Áhyggjur af stoðum bankanna og fjármálakerfisins eru ástæðulausar.
Taktfastur slátturinn í lestinni er svæfandi og tíminn líður hratt þegar maður er önnum kafinn. Tom Jenkins situr í lestinni og hamast við að klára síðustu kaflanna í stuttri greiningu sem á að senda viðskiptavinum bankans. Veröldin þýtur hjá út um lestargluggan og tíminn líka. Hann verður að ná að klára þetta. Bankinn sem hann er að skoðar er íslenskur, reyndar þokkalega stór. Útkjálkabanki sem hefur vaxið nokkuð hratt, kannski ekki ósvipað bankanum sem hann vinnur hjá Royal Bank of Scotland. Lestin nálgast stöðina og hann lýkur við skýrsluna. Hefði kannski þurft að tékka nokkur atriði, en ákveður að setja punktin aftan við og skýrslan er til. Hann finnur til feginleika um leið og hann bítur í neðrivörina og það er eins og hann verði skömmustulegur um stund. Síðan tekur straumur mannfjöldans hann með sér á næsta áfangastað. Af litlum neista Kveikja greiningarinnar er af tvennum toga. Annars vegar hafði álag á skuldabréf íslensku bankanna verið að hækka á eftirmarkaði og menn vildu finna á því skýringar. Hins vegar var þrálátur orðrómur um að KB banki hygðist kaupa veitingakeðjunna Compass á einn milljarð punda eða á annað hundrað milljarða íslenskra króna. Það er mikið fé fyrir ekki stærri banka og veruleg áhætta með því bundin í einu fyrirtæki. Forsvarsmenn bankans höfðu reyndar verið spurðir út í þennan orðróm. Þeir gáfu lítið út á það, en náðu ekki að eyða honum að fullu. Þeir sem þekkja til KB banka gátu sagt sér það sjálfir að bankinn stæði ekki í slíkum kaupum einn ef einhver fótur væri þá fyrir þessum orðrómi. Bankinn hefur reyndar náð góðum árangri í að fjármagna fyrirtækjakaup. Aðferðafræðin hefur reyndar alltaf verið sú sama. Sterkir stjórnendur sem brenna fyrir verkefnið og skýr framtíðarsýn. Standist verkefnið kröfur bankans, fjármagnar hann kaupin og kaupir sjálfur hlut í fyrirtækinu sem síðan er seldur í áföngum. Baugur, Bakkavör, Össur og Pharmaco sem nú heitir Actavis eru dæmi um slík verkefni sem hafa skilað sér í öflugum fyrirtækjum og góðum hagnaði fyrir bankann. Matsfyrirtækin gefa góða einkunn Tom Jenkins átti reyndar ekki von á því að þessi skýrsla myndi vekja mikla athygli, en það gerði hún og Royal Bank of Scotland sendi frá sér nýja skýrslu tólf tímum eftir að forsvarsmenn KB banka gerðu alvarlegar athugasemdar við þá fyrri. Það varð talsvert haværarí þegar því var slegið upp að álag á skuldabréf íslensku bankanna væri að hækka á eftirmarkaði. Bankarnir hafa sótt sér töluvert fé á markað með útgáfu skuldabréfa í Evrópu. Athyglin beindist að KB banka og skýrsla full af rangfærslum varð tilefni mikils uppsláttar og umfjöllunar. Rétt áður en fréttirnar birtust hafði alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch gefið KB banka einkunnina A og metur horfur fyrir bankann góðar með þeim fyrirheitum að enn sé von á betri einkunn gangi samþætting við breska bankann Singer og Friedlander vel. Miðað við þungan í umfjöllun hér heima vegna greiningar Royal Bank of Scotland og greiningar Dresdner Kleinwort Wasserstein mátti draga þá ályktun að bráður vandi væri á höndum í bankakerfinu og að loksins væri að koma í ljós sú mikla útþensla bankakerfisins væri á sandi byggð. Þessi mynd var dregin upp þrátt fyrir að alþjóðleg matsfyrirtæki sem leggja mikla vinnu í skoðun á fjármálafyrirtækjum hefðu ekki gert neinar athugasemdir. Einnig liggur fyrir að Seðlabankinn fylgist grannt með fjármögnun bankanna og lætur vita ef hætta er á að ójafnvægi skapist. Þannig fengu bankarnir á sínum tíma opið bréf frá Seðlabankanum vegna þess að skuldabréf bankanna á erlendum mörkuðum væru til of skamms tíma. Bankarnir brugðust við þeirri gagnrýni með því að lengja í skuldabréfum á erlendum mörkuðum. Áhyggjur Seðlabankans lutu að því að ef að aðstæður á mörkuðum versnuðu skyndilega, þá gæti slíkt leitt til fjármálakreppu ef ekki væri borð fyrir báru. Innlán á undanhaldi Bankar fjármagna sig með tvennum hætti. Annars vegar eru það innlán viðskiptavina sem bankinn lánar út með vaxtamun. Hitt er að gefa út skuldabréf og lána svo og fjárfesta fyrir það fé sem þannig aflast. Forsendan er sú sama og með innlánunum að hærri vextir fáist fyrir féð í útlánum og fjárfestingum. Bankar hafa mismunandi stefnu hvað varðar hlutfall innlána og skuldabréfa í fjármögnun sinni. Allt eftir eðli starfsemi þeirra. Samanburður á milli þeirra getur því verið villandi. KB banki keypti danska bankann FIH í fyrra. Sá banki er virtur fjárfestingarbanki sem nýtur góðs orðspors. Ekki ein dönsk króna er í bankanum í formi innlána. Bankinn fjármagnar öll verkefni sin með útgáfu skuldabréfa á markaði. Svipað gildir um BN bank í Noregi sem Íslandsbanki keypti. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka segir reyndar þróunina þá, að bankar fjármagni sig í síauknum mæli með skuldabréfaútgáfu. Innlán séu nánast hvergi að vaxa. Ástæðan er einföld. Gamla bankabókin er ekki lengur höfuðsparnaðarformið í heiminum. Sparnaður fólks er í gegnum lífeyrissjóði, verðbréfasjóði og tryggingafélög sem auk þess fjárfesta fyrir tryggingasjóði sína. Evrópskir bankar eru íhaldsamari í þessum efnum en til að mynda bandarískir. Þar kann að liggja hluti skýringa þeirra efasemda sem kveiktu greiningar þessara tveggja banka. Ýmis konar lærdóm má draga af atburðum vikunnar. Bankarnir þurfa að standa vel að allri upplýsingagjöf og bregðast við orðrómi með skýrum hætti. Það er líka ljóst að þegar einn íslenskur banki lendir í vandræðum, þá finna hinir fyrir því líka. Þannig versnuðu kjör þeirra allra á einum bretti á erlendum mörkuðum. Þar sem líklegast er að þetta tiltekna ástand sé skammvinnt og fjárþörf þeirra ekki brýn er ólíklegt að það verði þeim til tjóns í þetta sinnið.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Sjá meira