Erlent

Færeyingar í utanríkismál

Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur, og Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, undirrita í dag samkomulag sem kveður á um aukna aðkomu færeysku landstjórnarinnar að utanríkis- og varnarmálum eyjanna. Frá þessu er greint á fréttavef færeyska útvarpsins. Með samkomulaginu öðlast Færeyingar rétt til þátttöku í öllum viðræðum um alþjóðlegar samningsskuldbindingar sem einnig varða Færeyjar. Með þessu fá Færeyingar gamla ósk uppfyllta. Fram til þessa hafa utanríkis- og öryggismál Færeyja heyrt alfarið undir dönsku ríkisstjórnina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×