Erlent

Bakijev viðurkennir nýtt þing

Í tilraun til að slá á spennu í landinu lýsti nýr bráðabirgðaleiðtogi Kirgisistans, Kurmanbek Bakijev, því yfir í gær að hann viðurkenndi þjóðþingið. Áður hafði hann sagt þingið skorta lýðræðislegt umboð þar sem ekki væri að marka opinberar niðurstöður kosninga sem fram fóru í valdatíð fyrirrennara hans. Hreyfing lýðræðissinna sem hrakti fyrirrennarann, Askar Akajev, úr forsetastólnum í síðustu viku tók þessari ákvörðun Bakijevs illa og róstur héldu áfram í höfuðborginni Bishkek. Nýja þingið viðurkenndi fyrir sitt leyti Bakijev sem nýjan ríkisstjórnarleiðtoga. Bakijev var kjörinn forseti til bráðabirgða af fráfarandi þingi, sem með því reyndi að hindra að völdin færðust í hendur nýkjörna þinginu, sem mótmælendur vilja ekki viðurkenna vegna meintra kosningasvika. Auk þess að viðurkenna nýja þingið fór Bakijev fram á það í gær að Akajev segði formlega af sér, en fregnir herma að hann sé flúinn til Rússlands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×