Fimm ára þjálfaratíð Gunnars í Víkinni endar í vor Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2020 11:22 Gunnar Gunnarsson Vísir/Vilhelm
Gunnar Gunnarsson hættir sem þjálfari karlaliðs Víkinga í handbolta eftir tímabilið. Víkingsliðið er nú í sjöunda sæti í Grill 66 deild karla með fimm sigra í þrettán leikjum. Gunnar kom Víkingsliðinu upp í Olís deildina vorið 2017 en þetta er annað ár liðsins í röð í Grill 66 deild karla. Víkingar féllu vorið 2018 en fóru alla leið í hreinan úrslitaleik um sæti í Olísdeildinni síðasta vor þar sem HK hafði betur og fór upp. „Gunnar hefur þjálfað liðið í fimm ár og hefur á þeim tíma unnið afar fórnfúst og gjöfult starf í þágu Víkings. Hann skilar nú félaginu ungum og mjög efnilegum leikmannahóp sem verður hryggjarstykkið í uppbyggingu karlaliðsins á komandi árum. Fyrsta skrefið í þeirri vegferð eru leikir í umspili um sæti í efstu deild að ári,“ segir í fréttatilkynningu frá Víkingum. Þar kemur líka fram að í dag eru einungis fjórir leikmenn eftir af því Víkingsliði sem lék óvænt í Olísdeildinni tímabilið 2017 til 18. Gunnar þjálfaði Víkingsliðið einnig á árunum 1992 til 1995 en þá sem spilandi þjálfari. Hann hefur því stýrt Víkingsliðinu á átta tímabilum. Undir stjórn Gunnars hefur Víkingsliðið og æfingahópurinn yngst verulega ár frá ári sem má best sjá í þeirri staðreynd að í dag eru átta uppaldir Víkingar úr 3. flokki í æfingahóp og þar af þrír sem verið hafa í leikmannahóp í vetur.
Olís-deild karla Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira