Moss sendir frá sér afkomuviðvörun 11. janúar 2007 06:30 Meðal stærstu í herrafötum. Moss Bros segir að hagnaður minnki á milli ára.
Moss Bros hefur gefið út afkomuviðvörun þar sem segir að hagnaður félagsins á rekstrarárinu sem er að ljúka muni dragast töluvert saman á milli ára, jafnvel þótt afkoma af óreglulegum liðum aukist. Fram kemur að sala þessa þriðja stærsta herrafatasala Bretlandseyja hafði aukist um eitt prósent á milli ára miðað við fyrstu 49 vikur rekstrarársins sem lauk 6. janúar. Þegar einungis er horft til innri vaxtar dróst velta saman um 1,4 prósent. Vegna hlýindanna í Bretlandi á haustdögum dró úr sölu á þykkum frökkum og vetrarfatnaði. „Ég held að það sé liðin tíð að tala um kuldakafla í nóvember og desember," segir forstjórinn Philip Mountford í Guardian. Stjórnendur segja að þrátt fyrir erfitt rekstrarumhverfi í breskri smásölu muni þeir halda ótrauðir áfram að stækka félagið og endurbæta verslanir. Moss er að stærstum hluta í eigu Unity, fjárfestingafélags í eigu Baugs, FL Group og Kevins Stanford. Baugur hefur verið orðaður við yfirtöku á Moss, eins og stofnendur félagsins - Moss fjölskyldan og fjárfestingasjóðurinn Dawnay Day.
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Viðskipti innlent ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira