Lést eftir að hafa fest sig í fatasöfnunargámi Andri Eysteinsson skrifar 8. janúar 2019 23:01 Frá kanadísku borginni Toronto. EPA/Warren Toda
Kanadísk kona fannst í morgun látin ofan í fatasöfnunargámi í borginni Toronto í Kanada. Konan mun hafa fest sig í „tönnum“ sem komið hefur verið fyrir í opi gámsins. Þar festist hún og lést snemma á þriðjudagsmorgun.Samkvæmt frétt BBC höfðu sjö Kanadamenn látist í sambærilegum slysum síðan árið 2015, þar af fyrir um tveimur vikum. Fjöldi bæja, samtaka og einstaklinga hafa kallað eftir því að gámarnir verði teknir úr umferð og nýjum komið fyrir í staðinn. „Tennurnar“ eru á gámunum til að fyrirbyggja þjófnað en ljóst er að hætta getur fylgt þeim. Samkvæmt frétt BBC reyna margir að teygja sig í flíkur úr gámnum auk þess að heimilislausir leiti oft skjóls í gámum sem þessum. Það geti þó reynst mönnum erfitt að komast út úr gámunum aftur. Verkfræðiprófessor hjá Háskólanum í Vancouver, Ray Taheri, sagði í samtali við CBC að nemendur hans væru nú að hanna nýja gerð af gámum. Taheri segir að enginn hafi við hönnun upphaflegu gámanna hugleitt hvað gerðist ef einhver kæmist inn í gáminn. „Gámurinn verður dauðagildra,“ sagði Taheri.
Kanada Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira