Innlent

Mandarínönd í Reykjadal

Öndin hafði það náðugt á Narfastöðum í tvær vikur en er nú flogin á aðrar slóðir.
Öndin hafði það náðugt á Narfastöðum í tvær vikur en er nú flogin á aðrar slóðir. mynd/Gaukur Hjartarson

„Það var virkilega gaman að sjá þennan fugl enda er hann sérstaklega skrautlegur,“ segir Gaukur Hjartarson fuglaáhugamaður sem náði þessari fallegu mynd af mandarínönd sem gerði sig heimakomna við bæinn Narfastaði í Reykjadal í vor.



Gaukur telur að fuglinn hafi villst hingað frá Bretlandseyjum en mandarínendur eiga uppruna sinn í Asíu.



Mandarínendur eru sjaldséðir gestir á Íslandi en skömmu eftir að spurðist til andarinnar við Narfastaði skutu tvær endur upp kollinum á Höfn í Hornafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×