Stöðugt minna flutt inn af bensíni og olíu Óli Kristján Ármannsson skrifar 3. maí 2016 07:00
Innflutningur á olíu og bensíni verður 16 prósentum minni árið 2025 en hann er í dag samkvæmt nýrri spá Capacent. Spáin er hluti af viðleitni fyrirtækisins til að leggja mat á verðmæti olíufyrirtækjanna sem hér starfa. „Lykilforsenda í verðmati olíufélaga er þróun og framtíð á eldsneytismarkaði,“ segir í inngangi skýrslunnar sem kom út undir lok apríl. Samkvæmt spánni dregst innflutningurinn saman um sem nemur tæpum tveimur prósentum á ári að jafnaði. „Í kjölfar Parísarsamkomulagsins þurfa Íslendingar að skera niður notkun á olíu og jarðefnaeldsneyti. Beinasta og hagkvæmasta leiðin er að rafvæða (og jafnvel vetnisvæða) bílaflotann og endurnýja fiskiskipaflotann,“ segir í riti Capacent. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir spána ekki koma á óvart, enda hafi vísindamenn löngum bent á að jarðefnaeldsneyti sé takmörkuð auðlind sem þrjóta muni á endanum. Því megi allt eins gera ráð fyrir því eftir einhverja áratugi að framleiðslu á bensín- og dísilbílum verði hætt að stærstum hluta.„Sumir hafa spáð þessu innan áratugar,“ segir Özur, en telur þróunina verða hægari. Á móti komi tækniþróun. „Eyðsla bíla samkvæmt skýrslum frá Orkusetri hefur að jafnaði dregist saman um tæp 40 prósent frá 2005. Og sama á við um útblástur.“ Þessi þróun hægi á ferlinu við að klára þessar auðlindir. „Bensínbíllinn á heilmikið inni. Við sjáum núna koma á markaðinn bíla sem skila fínu afli, en eru kannski með 900 kúbika vél og eyða einum lítra á hundraðið.“ Özur bendir líka á að þótt rafvæðing bílaflotans kunni að henta vel hér á landi þá sé rafmagn víða í heiminum framleitt með kolum og olíu. Hér verðum við að fylgja sömu þróun á bílamarkaði og gerist annars staðar í heiminum. „Bílaframleiðendur horfa ekki á Ísland þegar þeir ákveða að framleiða bíla.“ Auk samdráttar í eldsneytisnotkun heimilanna, aðallega vegna sparneytnari bíla, bendir Capacent í skýrslu sinni á að töluverð endurnýjun eigi sér stað á fiskiskipaflotanum, en nýju skipin séu sparneytnari en þau eldri. Og þótt innflutningur þotueldsneytis hafi þrefaldast frá 2012 þá séu nýjar flugvélar líka sparneytnari en þær eldri.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 3. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira