Úrval rafbíla frá Mercedes-Benz eykst Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 29. desember 2020 07:00 EQA Mercedes-Benz ætlar sér að vera leiðandi í þróun rafbíla á heimsvísu og áætlar þýski lúxusbílaframleiðandinn að kynna átta nýja rafbíla fyrir árslok 2022. Þessi hröðun á rafbílaþróun hjá Mercedes-Benz er hluti af Ambition 2039 áætlun bílaframleiðandans sem miðar að því að rafbílar verði 50% af seldum bílum árið 2030 og árið 2039 verða allir bílar kolefnislausir.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju. Hinir nýju rafbílar munu allir bera EQ nafnið sem er nýtt undirmerki Mercedes-Benz tileinkað raf- og tengiltvinnbílum. Nýr EQA kemur til landsins í febrúar nk. en þessi netti sportjeppi er nú þegar kominn í forsölu hjá Bílaumboðinu Öskju og hægt er að tryggja sér einn af fyrstu bílunum sem koma til landsins á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Bíllinn var frumsýndur í hugmyndaútfærslu árið 2017 og kemur nú í fjöldaframleiðslu. EQA er hreinn rafbíll og verður með yfir 400 km drægni skv. WLTP staðli. EQB Þeir bílar sem einnig eru í farvatninu eru EQS, EQB, EQE, EQS SUV og EQE SUV. Af þeim koma EQA, EQB og lúxusrafbíllinn EQS strax á næsta ári en sá síðastnefndi verður nýtt flaggskip rafbílaflota Mercedes-Benz. Þeir munu ganga til liðs við núverandi rafbíla frá Mercedes-Benz þá EQC, EQV og eVito Tourer en þeir tveir síðarnefndu voru frumsýndir fyrir stuttu hjá Bílaumboðinu Öskju. Sportjeppinn EQC var fyrsti hreini rafbíll Mercedes-Benz en hann kom á markað í fyrra og hefur fengið góða dóma. „Við erum að hefja stórsókn í rafbílavæðingunni. Framleiðsla á sex nýjum rafbílum fram að árslokum 2022 sýnir styrk og metnað Mercedes-Benz í framleiðslugetu á heimsvísu. Við munum framleiða Mercedes-Benz rafbíla í tæknivæddum verksmiðjum okkar á sex stöðum í heiminum. Framleiðsla á háþróuðum rafhlöðum og sjálfbærni mun spila lykilhlutverk í þessari áætlun okkar sem mun gera Mercedes-Benz leiðandi í þróun rafbíla í heiminum,“ segir Jörg Burzer, stjórnarmaður hjá Daimler, sem er eigandi Mercedes-Benz. EQS Daimler tilkynnti nýlega að fyrirtækið hefði fjárfest fyrir alls 730 milljónir evra í verksmiðju sem mun einblína á framleiðslu á rafbílum frá Mercedes-Benz, en það samsvarar um 118 milljörðum króna. Verksmiðjan er í Sindelfingen í Þýskalandi þar sem fleiri verksmiðjur Mercedes-Benz eru staðsettar og hefur fengið heitið „Verksmiðja 56“. Alls hefur Daimler fjárfest fyrir 2,1 milljarð evra á Sindelfingen svæðinu eða tæpa 340 milljarða króna. „Við hjá Öskju erum spennt að frumsýna þessa stórglæsilegu bíla frá Mercedes-Benz sem munu koma í sýningarsalinn okkar fljótlega á næsta ári. Það er mjög mikill heiður að Mercedes-Benz horfi á Ísland sem mikilvægan markað fyrir rafbílana sína sem leiðir til þess að við erum með fyrstu mörkuðum í heimi til að fá þá hverju sinni. Núna strax í febrúar munum við frumsýna nýjan EQA sem er framhjóladrifinn borgarjepplingur með yfir 400 km drægi. Verðið kemur líka glettilega á óvart en hann mun kosta frá 6.590.000 og verður þá ríkulega útbúinn,“ segir Jónas Kári Eiríksson, forstöðumaður vörustýringar hjá Bílaumboðinu Öskju.
Vistvænir bílar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín Sjá meira