Körfubolti

LeBron James valinn í­þrótta­maður ársins hjá Time

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
LeBron [fyrir miðju hrúgunnar] fagnar NBA-meistaratitlinum með liðsfélögum sínum í Lakers. Hann var í dag valinn íþróttamaður ársins af tímaritinu Time. Hafði það þó meira að gera með frammistöðu LeBron utanvallar.
LeBron [fyrir miðju hrúgunnar] fagnar NBA-meistaratitlinum með liðsfélögum sínum í Lakers. Hann var í dag valinn íþróttamaður ársins af tímaritinu Time. Hafði það þó meira að gera með frammistöðu LeBron utanvallar. Mike Ehrmann/Getty Images

Þrátt fyrir að verða meistari með Los Angeles Lakers á einu undarlegasta NBA-tímabili í manna minnum þá er það sem LeBron afrekaði utan vallar það sem leiddi til þess að tímaritið Time valdi hann íþróttamann ársins.

Hinn 35 ára gamli LeBron [verður 36 ára þann 30. desember] fór fyrir sínum mönnum í LA Lakers er liðið landaði sínum fyrsta NBA-meistaratitli í heilan áratug. 

Eftir mögur ár þar sem liðið var hvergi nálægt því að komast í úrslitakeppnina þá tókst LeBron að lyfta grettistaki í Englaborginni með hjálp Anthony Davis, Rob Pelinka, Frank Vogel, Jeanie Buss og öðru góðu fólki.

Það eitt og sér - að vinna NBA-deildina í körfubolta - var þó engan veginn ástæðan fyrir því að tímaritið Time valdi hann sem íþróttamann ársins og var í rauninni ekki það helsta sem LeBron afrekaði á árinu.

Árið í ár var merkilegt fyrir margar sakir. Kórónufaraldurinn hefur haft áhrif á líf nær allra íbúa jarðar. Lakers goðsögnin Kobe Bryant lést í skelfilegu þyrluslysi snemma á árinu ásamt dóttur sinni og sjö öðrum.

Þá voru forsetakosningar í Bandaríkjunum, þar spilaði LeBron stóran þátt en hann – líkt og svo margir aðrir – töldu sig ekki þola önnur fjögur ár með Donald J. Trump í forsetastólnum.

Þann 8. júní ákvað James að gera eitthvað í málunum. Innan við tveimur vikum síðar hafði hann komið More Than a Vote-samtökunum á laggirnar. Eina takmark samtakanna var að fá fleira fólk til að kjósa í forsetakosningum Bandaríkjanna.

Kosningaferlið þar í landi er töluvert flóknara en við þekkjum hér á Íslandi og áttu samtökin að aðstoða fólk við að skrá sig – svo það gæti kosið – sem og að aðstoða það í að finna út hvar, hvenær og hvernig það gæti nýtt kosningarétt sinn.

Samtökin stungu upp á því að nota íþróttahallir og velli sem kosningastaði þar sem þá væri hægt að virða tveggja metra regluna og fjöldatakmarkanir. Einnig var mælt með því að nota yngra fólk til að vinna á kosningastöðunum þar sem eldra fólk væri í meiri áhættuhóp þegar kemur að kórónuveirunni.

LeBron tjáði sig reglulega um málstaðinn á samfélagsmiðlum sínum og var myndaði í ´Vote or Die!´ bol á æfingu.

Þrátt fyrir að vera einn besti körfuboltamaður sinnar kynslóðar, og mögulega einn sá besti í sögunni, á lætur LeBron það ekki aftra sér í að láta til sín taka utan vallar. Segja má að titill Lakers í „búbblunni“ í Disney World hafi verið rúsínan í pylsuendanum.

Það er þess vegna sem LeBron James er íþróttamaður ársins 2020 að mati tímaritsins Time.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×