Albumm

Þessi hlutu Kraumsverðlaunin 2020

Ritstjórn Albumm skrifar
Gugusar, Ingibjörg Turchi, Salóme Katrín, Skoffín, Ultraflex og Volruptus hljóta Kraumsverðlaunin 2020.
Gugusar, Ingibjörg Turchi, Salóme Katrín, Skoffín, Ultraflex og Volruptus hljóta Kraumsverðlaunin 2020.

Kraumsverðlaunin voru afhent í þrettánda sinn á Laugaveginum í gær. Í stað hefðbundins verðlaunahófs innandyra voru verðlaunin veitt undir berum himni á Laugaveginum í tengslum við tónleikaseríuna Talið í Tónum – Jóladagal, sem fer fram í allan desember fram að jólum.

Venju samkvæmt eru sex hljómsveitir og listamenn verðlaunaðir fyrir plötur sínar í ár. Gugusar, Ingibjörg Turchi, Salóme Katrín, Skoffín, Ultraflex og Volruptus hljóta Kraumsverðlaunin 2020.

Salóme Katrín spilaði

Kraumsverðlaunahafinn Salóme Katrín, sem á dögunum gaf út sína fyrstu breiðskífu Water, spilaði á verðlaunaafhendingunni og jafnframt á tónleikaseríunni Talið í Tónum – Jóladagal þar sem íslenskir listamenn úr öllum áttum koma fram. Meðal annars fjölmargir verðlaunahafar og listamenn sem tilnefndir eru til Kraumsverðlaunanna í ár.

Kraumsverðlaunin eru veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa verðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 eru Auður, Cell7, Daníel Bjarnason, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Lay Low, Mammút, Ólöf Arnalds, Retro Stefson og Sóley.

Eldar Ástþórsson og Árni Matt voru í dómnefnd.

Fóru yfir 439 plötur og útgáfur

Dómnefnd verðlaunanna eru skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfustarfsemi varðar, enda fór dómnefndin yfir og hlustaði á 439 hljómplötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sitt.

Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum.

Hægt er að kynna sér Kraum nánar á heimasíðunni kraumur.is og á Facebook og Instagram.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.


Tengdar fréttir

Föstudagsplaylisti Skoffíns

„Skoffín hefur það náðugt heima hjá sér“ er friðsæll, fjölbreyttur og flottur fyrir föstudagseldamennskuna.

Föstudagsplaylisti Volruptus

Raftónlistarmaðurinn og Berlínarbúinn Bjargmundur Ingi, eða Volruptus, á föstudagsplaylistann þessa vikuna.








×