Íslenska kvennalandsliðið hefur verið fastagestur á Evrópumótum frá því það komst á sitt fyrsta mót árið 2009. Frábært mark Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur, leikmanns Le Havre í frönsku úrvalsdeildinni, tryggði sigurinn í gær og þar með sæti á mótinu sem fram fer á Englandi sumarið 2022.
JÁ JÁ JÁ! Þú verð hann ekki þarna! Stórkostlegt mark frá @berglindbjorg10 pic.twitter.com/WvLwU1sgcZ
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) December 1, 2020
Mótið átti að fara fram næsta sumar en var frestað um eitt ár þar sem Evrópumót karla í knattspyrnu var fært fram um eitt ár vegna kórónufaraldursins. Taldi knattspyrnusamband Evrópu það ógjörning að halda bæði mótin á sama tíma. EM landsliðs 21 árs og yngri hefur einnig verið hliðrað til svo það skerist ekki á við mótið næsta sumar.
Gengi Íslands á EM til þessa hefur verið nokkuð svart og hvítt. Árið 2009 tapaði liðið öllum þremur leikjum sínum í riðlinum en fjórum árum síðar endaði það með fjögur stig og fór í 8-liða úrslit. Árið 2017 var niðurstaðan aftur tap í öllum leikjum riðlakeppninnar. Ef við miðum við þessa tölfræði ætti liðið að komast upp úr riðlinum á EM 2022.

EM 2009 í Finnlandi
Þrátt fyrir að tapa öllum þremur leikjum sínum á EM 2009 verður seint sagt að íslenska liðið hafi ekki gefið allt sem það átti. Eftir aðeins sex mínútur í fyrsta leik gegn Frakklandi kom Hólmfríður Magnúsdóttir íslenska liðinu yfir. Því miður reyndist franska liðið of sterkt það sem eftir lifði leiks og vann 3-1 sigur.
Í kjölfarið fylgdu 1-0 töp gegn Noregi og Þýskalandi. Þjóðverjar unnu England 6-2 í úrslitum eftir að hafa lagt Noreg í undanúrslitum. Ísland gat því vart fengið erfiðari riðil á sínu fyrsta stórmóti frá upphafi.
Það sem vekur ef til vill hvað mesta athygli við liðsskipan Íslands þann 24. ágúst 2009 er þáverandi leikmaður Breiðabliks í treyju númer 11. Sú heitir Sara Björk Gunnarsdóttir og er í dag fyrirliði íslenska liðsins og leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi.
EM 2013 í Svíþjóð
Evrópumótið fjórum árum síðar gekk töluvert betur og komst íslenska liðið upp úr riðlinum sínum. Aftur vorum við með Noregi og Þýskalandi í riðli, Holland var svo fjórða lið riðilsins.
Ísland hóf mótið með 1-1 jafntefli gegn Noregi. Aftur var það Hólmfríður Magnúsdóttir sem var fyrst að láta til sín taka. Hún var reyndar ekki á markaskónum að þessu sinni heldur nældi hún sér í fyrsta gula spjald Íslands á mótinu.

Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði metin fyrir Ísland á 87. mínútu og tryggði íslenska liðinu þar með sitt fyrsta stig í á stórmóti í knattspyrnu. Aftur var Sara Björk í liðinu, að þessu sinni í treyju númer sjö.
Hallbera Guðný Gísladóttir var einnig í liðinu þá sem og í 1-0 sigrinum á Slóvakíu í gær. Ungur varnarmaður að nafni Glódís Perla Viggósdóttir kom inn af varamannabekknum í síðari hálfleik, sú hefur verið máttarstólpi í íslensku vörninni síðan þá.
Eftir erfitt 3-0 tap gegn Þjóðverjum var komið að fyrsta sigri Íslands á stórmóti. Dagný Brynjarsdóttir skoraði eina mark Íslands í 1-0 sigri á Hollandi. Fyrsti sigurinn kominn í hús og sæti í 8-liða úrslitum þar sem Svíþjóð beið átekta.

Leikurinn gegn Svíþjóð fer ekki í neinar sögubækur en íslenska liðið steinlá 4-0 og lauk þar með leik. Aftur voru það Þjóðverjar sem lönduðu sigri á mótinu og að þessu sinni var það Noregur sem beið lægra haldi í úrslitum.
EM 2017 í Hollandi
Ef til vill er hér um að ræða mest svekkjandi niðurstöðu landsliðsins á stórmóti. Ísland byrjaði á því að tapa naumlega 1-0 gegn stórliði Frakklands þar sem markið kom úr umdeildri vítaspyrnu undir lok leiks. Frammistaðan góð og leikir gegn Sviss og Austurríki framundan.

Þarna var íslenska liðið orðið mjög svipað því sem við þekkjum í dag. Þær Glódís Perla og Hallbera Guðný voru í vörninni ásamt Ingibjörgu Sigurðardóttur. Þá var Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir á miðjunni en þessar fjórar skipuðu varnarlínu Íslands í gær.
Sara Björk var að sjálfsögðu á sínum stað á miðjunni og Agla María Albertsdóttir úti á vængnum. Þá kom Elín Metta Jensen inn af varamannabekknum en hún lék einnig leikinn í gær. Af þeim 11 leikmönnum sem hófu leik gegn Slóvakíu þá komu sjö þeirra við sögu í 1-0 tapinu gegn Frakklandi á EM 2017.
Leikurinn gegn Sviss byrjaði vel og Fanndís Friðriksdóttir kom Íslandi yfir þegar rúmur hálftími var liðinn. Sviss jafnaði hins vegar metin rétt fyrir hálfleik og skoraði aftur í upphafi síðari hálfleiks. Þar með virtist allur vindur úr íslenska liðinu sem átti því miður engin svör við þéttum varnarmúr Svisslendinga.

Ísland beið svo hálfgert afhroð í síðasta leik sínum í riðlinum þar sem það mátti þola 3-0 tap gegn Austurríki sem fór alla leið í undanúrslit mótsins.
EM 2022 í Englandi
Fjórða Evrópumótiðí röð. Miðað við hversu sveiflukennt gengi liðsins hefur verið hingað til þá vonum við að það haldi áfram og íslenska liðið fljúgi upp úr riðlinum.
Óljóst er hvaða landi gestgjafar Englands munu mæta í fyrsta leik mótsins en ljóst er að sá leikur fer fram á Old Trafford, heimavelli Manchester United í Manchester-borg. Úrslitaleikurinn sjálfur fer svo fram á þjóðarleikvangi Englendinga í Lundúnum, sjálfum Wembley.

Aðrir vellir sem keppt verður á:
- Brammall Lane [heimavöllur Sheffield United]
- Brentford Community-völlurinn [heimavöllur Brentford]
- Falmer-völlurinn (heimavöllur kvennaliðs Brighton)
- Leigh Sports Village [heimavöllur kvennaliðs Manchester United]
- Manchester City Academy-völlurinn [heimavöllur unglingaliða Manchester City]
- New York-völlurinn [heimavöllur Rotherham]
- Stadium MK [heimavöllur MK Dons]
- St. Mary´s-völlurinn [heimavöllur Southampton].
Eins og staðan er í dag verður það Sara Björk Gunnarsdóttir sem mun leiða Ísland inn á völlinn er íslensku stelpurnar mæta á sitt fjórða Evrópumót í röð. Reikna má með Glódísi Perlu og Ingibjörgu Sigurðardóttur í varnarlínu liðsins. Það má því með sanni segja að þó mikið vatn sé runnið til sjávar síðan 2009 þá virðast sumir hlutir breytast seint.