Viðskipti erlent

Flug­banni Boeing 737 Max vélanna verður lík­lega aflétt í janúar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður líklega aflétt í janúar.
Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður líklega aflétt í janúar. EPA-EFE/STEPHEN BRASHEAR

Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður aflétt í janúar. Eftirlitsyfirvöld í Bandaríkjunum bundu í síðustu viku endi á 20 mánaða langt flugbann vélanna eftir að tvær slíkar vélar hröpuðu.

Yfirmaður Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins, EASA, sagði í dag að stofnunin teldi vélarnar orðnar öruggar til flugs eftir að ráðist var í breytingar á hönnun vélarinnar.

Tvær vélar af 737 Max gerð hröpuðu í Indónesíu og Eþíópíu árin 2018 og 2019 og dóu 346 í slysunum. Í kjölfarið vöknuðu upp spurningar um öryggi vélanna og voru þær settar í flugbann á meðan gerðar voru grundvallabreytingar á hönnun þeirra.

EASA hefur þegar hafið undirbúning á tillögu um að enda flugbannið og verður tillagan gerð opinber í næstu viku. Þá tekur við mánaðarbið, þar sem hægt verður að gera athugasemdir við tillöguna. Þegar því ferli er lokið og búið er að vinna úr athugasemdunum verður tekin ákvörðun um hvort létta eigi flugbanninu og gert er ráð fyrir að sú ákvörðun verði gerð í janúar.

Óljóst er hve langan tíma það mun taka fyrir flugvélarnar að komast aftur í notkun í Evrópu en flugmenn munu þurfa að fá þjálfun og flugfélög tíma til þess að uppfæra hugbúnað vélanna og tryggja að þær uppfylli staðla EASA.

Áætlað er að notkun vélanna hefjist þann 29. desember í Bandaríkjunum en þá verða liðnar tæpar sex vikur frá því að eftirlitsyfirvöld í Bandaríkjunum birtu tilskipun um að flugbanninu væri létt.

Aðildarríki EASA eru öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins auk EFTA ríkjanna: Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss. Þá fellur Bretland einnig undir EASA en því mun ljúka 31. desember, þegar Bretland segir skilið við Evrópusambandið.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

MAX-vélar Icelandair teknar í notkun næsta vor

Forstjóri Icelandair Group segir að miðað við fjölda flugferða í núverandi ástandi sé Icelandair með nægilega margar vélar til að anna áætluninni. Bandarísk flugmálayfirvöld gáfu MAX-vélunum grænt ljós til að fljúga á ný í gær.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×