Makamál

Spurning vikunnar: Hefur þú persónulega reynslu af kynlífsfíkn?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Kynlífsfíkn getur haft alvarleg áhrif á líf fólks sem er haldið henni og þeirra sem standa einstaklingnum nærri. 
Kynlífsfíkn getur haft alvarleg áhrif á líf fólks sem er haldið henni og þeirra sem standa einstaklingnum nærri.  Getty

Samkvæmt grófri skilgreiningu á kynlífsfíkn, á það við þegar hegðun einstaklinga sem snýr að  kynlífi, fer að verða áráttukennd og bitnar þar af leiðandi á öðrum þáttum í lífinu.

Það má segja að ákveðið stjórnleysi einkenni líf fólks sem haldið er kynlífsfíkn og hefur það mikil áhrif bæði á andlega og líkamlega líðan. 

Makamál birtu á dögunum lista yfir 40 atriði sem einkenna ástar- og kynlífsfíkla en listann er hægt að finna á heimasíðu SLAA.IS.

 SLAA eru samtök fólks sem leitast við að ná bata frá ástarfíkn og kynlífsfíkn þar sem unnið er á grunni 12 spora kerfisins. Öllum þeim sem hafa grunsemdir eða áhyggjur af því að vera haldnir kynlífsfíkn er bent á að leita sér ráðgjafar hjá kynlífsráðgjöfum, sálfræðingum eða SLAA.IS. 

Athugið að í þessari könnun er einungis verið að spyrja um kynlífsfíkn en ekki ástarfíkn. 

Hægt er að svara könnuninni hér fyrir neðan.  


Tengdar fréttir

„Ég passaði bara ekki inn í mig“

„Frá því að ég var á kynþroskaaldri þá fann ég að það var eitthvað að, alltaf einhver vanlíðan sem að ég skildi ekki.“ Þetta segir Bjarki Steinn Pétursson í viðtali við Makamál en Bjarki kom út sem transstrákur árið 2018.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×