Makamál

Spurning vikunnar: Hefur þú falið rafræn samskipti fyrir maka?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Í nútíma samfélagi eru rafræn samskipti oft stór hluti af daglegu lífi. 
Í nútíma samfélagi eru rafræn samskipti oft stór hluti af daglegu lífi.  Getty

Flest okkar eigum reglulega í einhversskonar rafrænum samskiptum við fólk, hvernig svo sem þau tengjast okkur. 

Sum rafræn samskipti við aðra en maka geta sumum þótt vera á gráu svæði þegar þú ert í sambandi. Allt fer þetta þó eftir eðli samskiptanna og við hvern verið er að eiga samskipti.

Veruleiki okkar á tímum samfélagsmiðla gerir leiðina að samskiptum sem jafnvel gætu talist óviðeigandi, styttri en ella. Ef sambandið er á hálum ís og fólk er að upplifa einhverskonar vantraust geta þessi mál orðið stór og flókin. 

Einhverjir geta upplifað afbrýðisemi, svik eða jafnvel einhvers konar framhjáhald þegar þeir komast að einhverjum samskiptum maka við aðra eða vita til þess að samskiptum hafi verið eytt. 

Sum samskipti sem fólk eyðir þurfa þó ekki endilega að vera óviðeigandi eða einhverskonar svik. Þau gætu sem dæmi verið einhverskonar ráðfærsla eða trúnaðartal við manneskju sem viðkomandi ber traust til og vill ekki að maki sjái þær samræður. 

Spurning vikunnar er því þessi - Hefur þú falið rafræn samskipti fyrir maka?


Tengdar fréttir

Einhleypan: „Sundsjúk, hvatvís og heillast af húmor“

„Ég þori reyndar varla að taka það fram hér að ég sé nuddari en ég læt fylgja sögunni að ég hef átt flekklausan og perralausan nuddferil og ætla mér að halda því áfram,“ segir Þórunn Elva Þorgeirsdóttir Einhleypa vikunnar.

„Ég var allt í einu ein, ekkja með þrjú börn og bara 33 ára gömul“

„Mér fannst ég leyfa þessu að gerast. Ég hafði séð svona í bíómyndum og þá berst fólk alltaf á móti. Ég barðist ekki á móti, þá hlaut þetta að vera mér að kenna. Ég hugsaði alltaf að þögn væri sama og samþykki. Ég bara fraus. Ég var lömuð þegar þeir luku sér af.“ Þetta segir Kristín Þórsdóttir í viðtali við Vísi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×