Makamál

Ertu að ganga í gegnum sambandsslit?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Makamál tóku saman tilvitnanir sem gott gæti verið að skoða þegar þú ert að ganga í gengum sambandsslit og ástarsorg.
Makamál tóku saman tilvitnanir sem gott gæti verið að skoða þegar þú ert að ganga í gengum sambandsslit og ástarsorg.
Að ganga í gegnum sambandsslit eða skilnað getur verið eitt það erfiðasta sem við göngum í gegnum á lífsleiðinni. Ástarsorg getur haft mikil áhrif á andlega og líkamlega heilsu en þá er mikilvægt að hafa gott stuðningsnet í kringum sig og gera allt til þess að leita sér hjálpar og byggja sig upp.

Það er ekki óalgengt að sjá breytingu á hegðun fólks á samfélagsmiðlum þegar það gengur í gegnum sambandsslit en oft verða „selfies“ og tilvitnanir meira áberandi meðal þess efnis sem fólk dreifir á vini sína.

Sumar tilvitnanir geta verið mjög hughreystandi á meðan aðrar eru kaldhæðnar og kómískar. Þannig fær fólk smá útrás og líður jafnvel aðeins betur. 

Makamál tóku saman lista yfir 15 ólíkar break-up tilvitnanir sem vonandi fá fólk til að brosa í gegnum tárin.


Tengdar fréttir

Bone-orðin 10: Aron Bergmann vill fyndni en ekki frekju

Aroni Bergmann er margt til lista lagt en hann hefur starfað í auglýsingageiranum í mörg ár og er núna að vinna sem leikmyndahönnuður, teiknari og hugmyndasmiður. Makamál spurðu Aron hver væru hans tíu bone-orð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×