Samstarf

Afgreiða lyf um bílalúgu tólf tíma á dag

Lyfsalinn
Stefán Páll Jónsson lyfjafræðingur hjá Lyfsalanum afgreiðir lyf beint í bílinn. Mikil þægindi fyrir viðskiptavini og minni smithætta.
Stefán Páll Jónsson lyfjafræðingur hjá Lyfsalanum afgreiðir lyf beint í bílinn. Mikil þægindi fyrir viðskiptavini og minni smithætta. Vísir/Bjarni Þór

„Bílaapótek eru algeng erlendis en frekar ný af nálinni hér á landi. Fólk spyr okkur oft hvort það sé yfirleitt hægt að fá lyf í lúgunni, en fólk er fljótt að komast upp á lag með þetta. Við erum annað bílaapótekið sem opnað er í Reykjavík og þetta fyrirkomulag er örugglega komið til að vera,“ segir Stefán Páll Jónsson, lyfjafræðingur hjá Lyfsalanum en Lyfsalinn opnaði bílaapótek við Vesturlandsveg, Grjóthálsi 8, í sumar.

Afgreitt er um fjórar lúgur og hver afgreiðsla tekur ekki nema nokkrar mínútur.Vísir/Bjarni Þór

Áður var starfrækt sjoppa og veitingastaður í húsnæðinu og gengur afgreiðslan í apótekinu svipað fyrir sig og þegar keyptur er hamborgari og franskar.

„Það má nokkurn veginn segja það, fólk ekur bara að lúgunni og gefur upp kennitölu þegar það er að sækja lyf og telur upp þær vörur sem það ætlar að kaupa, plástra, þurrmjólk eða hvað sem er og við náum í þetta. Hver afgreiðsla tekur enga stund. Við afgreiðum um fjórar lúgur en það er líka hægt að koma inn ef fólk kýs það,“ segir Stefán Páll. Lúgufyrirkomulagið hafi marga kosti og sérstaklega á tímum sem þessum.

„Það minnkar smithættu að þurfa ekki að fara inn í apótekið en það er fyrst og fremst þægilegt að þurfa ekki að fara út úr bílnum. Þeir sem eiga erfitt með gang taka þessari þjónustu fagnandi. Fólk losnar einnig við að leita að stæði og þeir sem eru með börn í bílnum nota sér að þurfa ekki að losa þau úr bílstólunum. Við opnuðum í lok júlí og viðtökurnar hafa verið frábærar.“ 

Einnig er hægt að koma inn og versla ef fólk kýs. Opið er frá klukkan tíu á morgnan til tíu á kvöldin alla daga vikunnar.Vísir/Bjarni Þór

Langur opnunartími

Bílaapótek Lyfsalans er opið alla daga frá klukkan 10 til 22. Stefán segir marga nýta sér þau þægindi að geta sótt lyf og aðrar vörur á kvöldin og um helgar. Þá sé Lyfsalinn eina apótekið á þessu svæði sem opið er svona lengi.

„Við erum eina apótekið svona austarlega í borginni sem er opið þetta lengi. Við verðum vör við að íbúar í Mosfellsbæ og jafnvel frá Akranesi nýti sér að þurfa ekki lengra en til okkar. Við leggjum mikla áherslu á góða og faglega þjónustu og hjá okkur er hlutfall fagmenntaðra lyfjafræðinga yfir 75 % starfsfólks. Það á við í öllum okkar apótekum en fyrir utan bílaapótekið hefur Lyfsalinn starfrækt apótek í Glæsibæ til margra ára,“ segir Stefán.

Nýverið opnaði Lyfsalinn einnig stórt apótek í Orkuhúsinu Urðarhvarfi en í Orkuhúsinu er meðal annars starfrækt sjúkraþjálfun, læknaþjónusta og röntgenmyndatökur svo eitthvað sé nefnt. „Við erum mjög vel staðsett í Orkuhúsinu, bæði fer þar fram fjölbreytt þjónusta og svo er heilsugæslan í næsta húsi við okkur."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×