Lögreglumaður drepinn í hryðjuverkaárás í Sousse Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2020 14:39 Árásarmennirnir eiga að hafa komið akandi á bíl að eftirlitsstöð á gatnamótum nálægt höfninni. Hafi þeir svo ráðist á lögreglumenn með hnífum. EPA
Lögreglumaður var drepinn og annar særðist í hnífstunguárás sem gerð var í túnisku hafnarborginni Sousse í morgun. BBC segir frá því að þrír árásarmenn hafi verið skotnir til bana eftir árásina, sem lýst hefur verið sem hryðjuverkaárás. Árásarmennirnir eiga að hafa komið akandi á bíl að eftirlitsstöð á gatnamótum nálægt höfninni. Hafi þeir svo ráðist á lögreglumenn með hnífum. Eftir árásina stálu þeir skotvopnum og lögreglubíl og héldu af vettvangi. Hófst þá eftirför í gegnum hverfið El Kantaoui og árásarmennirnir að lokum drepnir í átökum við lögreglu. Árásin var gerð tveimur dögum áður en ný ríkisstjórn tekur við stjórnartaumunum í landinu. Árið 2015 var ein mannskæðasta hryðjuverkaárásin í sögu Túnis gerð í Sousse þar sem árásarmaður drap 38 manns. Fórnarlömbin voru fyrst og fremst breskir ferðamenn.
Túnis Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira