Handbolti

Sigvaldi með fimm mörk í sigri

Ísak Hallmundarson skrifar
Sigvaldi skoraði fimm mörk í sigrinum í dag.
Sigvaldi skoraði fimm mörk í sigrinum í dag. getty/Jörg Schüler

Sigvaldi Guðjónsson skoraði fimm mörk í 34-25 sigri Kielce á Wybrzeze Gdansk í pólsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Þetta var annar leikur Kielce í deildinni, en sá fyrri endaði með jafntefli. Staðan í hálfleik var 16-14 fyrir Kielce, en Sigvaldi skoruð fjögur af fimm mörkum sínum í fyrri hálfleik. Kielce vann seinni hálfleikinn síðan 18-11 og lokatölur 34-25. Haukur Þrastarson er leikmaður Kielce en var ekki með í dag vegna meiðsla.

Kielce er með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Næsti leikur er heimaleikur við Pogoń Szczecin á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×