Lífið

Ed Sheeran er orðinn faðir í fyrsta skipti

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ed Sheeran tók sér hlé í lok síðasta árs til þess að ferðast og upplifa eitthvað til að skrifa tónlist um síðar.
Ed Sheeran tók sér hlé í lok síðasta árs til þess að ferðast og upplifa eitthvað til að skrifa tónlist um síðar. Getty/ Martin Rickett

Söngvarinn Ed Sheeran tilkynnti á Instagram rétt í þessu að í síðustu viku hafi hann eignast dóttur með eiginkonu sinni, Cherry Seaborn. 

„Cherry fæddi fallega og heilbrigða dóttur - Lyra Antarctica Seaborn Sheeran.“ 

Ed Sheeran og Cherry Seaborn hafa ekki verið mynduð mikið opinberlega síðustu mánuði.Getty/ Stephen Pond

Söngvarinn segir að móður og barni heilsist vel og þau svífi nú öll um á skýi. Hann biður um að fólk virði friðhelgi einkalífs þeirra á þessum tíma. Á síðasta ári tilkynnti Sheeran að hann ætlaði að taka sér hlé frá sviðsljósinu og er þetta fyrsta myndin sem hann birtir á Instagram síðan jólin 2019. Hann virðist þó ætla að taka sér lengri pásu og endar færsluna á að segja 

„Sjáumst þegar það er kominn tími á að koma til baka.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×