Handbolti

HSÍ hvetur iðkendur til heimaæfinga

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Úr leik í Olís-deildinni fyrr í vetur.
Úr leik í Olís-deildinni fyrr í vetur. vísir/bára
Allt íþróttastarf í landinu liggur niðri vegna Covid-19 en það er ekki þar með sagt að íþróttafólk liggi með tærnar upp í loft. Heimaæfingar eru mikið stundaðar hér á landi sem og annars staðar í heiminum.

Handknattleikssamband Íslands vill leggja sitt af mörkum og hefur hrundið af stað átakinu #æfumheima.

Átakið gengur út á að aðstoða iðkendur við að gera æfingar heima við til að halda sér við á meðan samkomubanni stendur.

Eins og sjá má hér fyrir neðan hófu landsliðsmarkverðirnir Björgvin Páll Gústavsson og Hafdís Renötudóttir leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×