Körfubolti

Westbrook sá til þess að Houston vann Boston í háspennu leik | Lakers töpuðu stórt | Myndbönd

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Westbrook skoraði 41 stig í nótt í naumum sigri Houston.
Westbrook skoraði 41 stig í nótt í naumum sigri Houston. Vísir/Getty

Russell Westbrook átti frábæran leik er Houston Rockets vann Boston Celtics með einu stigi í framlengdum leik í nótt, lokatölur 111-110. Þá töpuðu Los Angeles Lakers óvænt fyrir Memphis Grizzlies þar sem ungstirnið Jay Morant fór á kostum sem höfðu ekki unnið í fimm leikjum í röð.

Önnur úrslit næturinnar má finna hér að neðan.

Houston heimsótti Boston í TD Garden í nótt. Liðin voru fyrir leik með nokkuð svipaða tölfræði, Boston hafði unnið 41 og tapað 17 á meðan Houston hafði unnið 38 og tapað 20. Það fór svo að liðin þurftu framlengingu til að skera úr um hvort myndi landa sigri í nótt. 

Heimamenn í Celtics byrjuðu leikinn betur og voru níu stigum eftir 1. leikhluta og 11 stigum yfir í hálfleik, staðan þá 56-45. Voru þeir leiddir áfram af Jason Taytum sem hefur átt mjög gott tímabil. Alls skoraði hann 32 stig í leiknum ásamt því að taka 13 fráköst. Í liði Houston eru hins vegar þeir Russell Westbrook og James Harden.

Þeir settu í 5. gír í síðari hálfleik og tókst að jafna metin þökk sé ótrúlegum þriðja leikhluta þar sem liðið skoraði 36 stig. Fór Houston með forystu inn í síðasta fjórðung leiksins en þar komu heimamenn til baka og náðu að kreista út framlengingu þökk sé flautukörfu Jaylen Brown.

Fór það svo að Houston vann framlenginguna 7-6 og leikinn þar með 111-110 en síðustu tvo stig liðsins komu frá Harden af vítalínunni. Westbrook endaði leikinn með 41 stig, átta fráköst og fimm stoðsendingar. Harden setti 21 stig og gaf átta stoðsendingar.

Lebron James, Anthony Davis og félagar í Los Angeles Lakers töpuðu nokkuð óvænt gegn Memphis Grizzlies í nótt en síðarnefnda liðið hafði tapað fimm leikjum í röð fyrir leikinn í nótt.

Lakers náðu í raun aldrei nenum takti í leiknum og voru komnir 15 stigum undir í 2. leikhluta. Fór það svo að Memphis vann leikinn örugglega 105-88. 

Jonas Valančiūnas átti frábæran leik fyrir Memphis en hann skoraði 22 stig og tók 22 fráköst. Þá skoraði Ja Morant 27 stig og gaf 14 stoðsendingar. Í liði Lakers var LeBron atkvæðamestur með 19 stig, 10 stoðsendingar og átta fráköst. Þar á eftir kom Davis með 15 stig og níu fráköst.

Önnur úrslit

Miami Heat 116-113 Brooklyn Nets

Cleveland Cavaliers 104-113 Indiana Pacers

San Antonio Spurs 114-113 Orlando Magic

Phoenix Suns 99-115 Golden State Warriors

Atlanta Hawks 129-117 Portland Trail Blazers

NBA

Tengdar fréttir

Steph Curry að snúa aftur

Stephen Curry, leikmaður Golden State Warriors, hefur verið frá keppni vegna meiðsla í fjóra mánuði en er nú loksins byrjaður að æfa með liðinu á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×