Körfubolti

James kom Lakers í úrslitakeppnina | Neitar að spila án stuðningsmanna

Sindri Sverrisson skrifar
Lebron James og Giannis Antetokounmpo áttust við í nótt.
Lebron James og Giannis Antetokounmpo áttust við í nótt. vísir/getty

Þó að flestir séu á því að Grikkinn Giannis Antetokounmpo hljóti MVP-verðlaunin í NBA-deildinni í ár þá var það LeBron James sem skein skærast þegar þeir mættust í nótt.

James og félagar í LA Lakers unnu 113-103 sigur á Milwaukee Bucks og átti James algjöran stórleik. Hann skoraði 37 stig, tók átta fráköst og af sjö stoðsendingar í þessu einvígi liðanna sem eru efst í vestur- og austurdeild. Antetokounmpo skoraði engu að síður 32 stig, tók 11 fráköst og gaf 6 stoðsendingar

Lakers hafa nú endanlega tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, í fyrsta sinn frá árinu 2013.

James var spurður að því eftir leik hvað honum þætti um hugsanlegt áhorfendabann vegna kórónuveirunnar og var fljótur til svars:

„Að við spilum leiki án stuðningsmannanna? Neee, það er ómögulegt. Ég spila ekki, ef ég er ekki með stuðningsmennina á áhorfendapöllunum. Það eru þeir sem ég spila fyrir,“ sagði James.

Úrslitin í nótt:

Washington - Atlanta 118-112

Boston - Utah 94-99

New Orleans - Miami 110-104

LA Lakers - Milwaukee 113-103

Brooklyn - San Antonio 139-120

Chicago - Indiana 102-108

Dallas - Memphis 121-96

New York - Oklahoma 103-126

Minnesota - Orlando 118-132

Phoenix - Portland 127-117

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×