Óðinn með sex í sigri | Björgvin Páll sterkur gegn toppliðinu Sindri Sverrisson skrifar 7. mars 2020 16:45 Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk í dag. Vísir/GOG
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk úr 6 skotum fyrir GOG í 36-33 sigri gegn Kolding í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir GOG en þeir Árni Bragi Eyjólfsson og Ólafur Gústafsson voru ekki á meðal markaskorara Kolding. Með sigrinum styrkti GOG stöðu sína í 2. sæti með 34 stig eftir 24 leiki, þremur stigum á undan Holstebro þegar tvær umferðir eru eftir. Holstebro á þó leik til góða. Kolding er í 12. sæti og á leið í fallumspil. Aalborg hafði þegar tryggt sér sigur í deildinni en liðið gerði jafntefli við Skjern, 28-28. Björgvin Páll Gústavsson varði mark Skjern í seinni hálfleik og stóð sig afar vel en hann varði 7 af 18 skotum sem hann fékk á sig í leiknum, eða 39%. Elvar Örn Jónsson átti hins vegar ekki góðan dag og nýtti ekkert af sex skotum sínum. Hjá Aalborg var Ómar Ingi Magnússon með tvö mörk úr sjö skotum en Janus Daði Smárason komst ekki á blað. Skjern er í 4. sæti með 28 stig, stigi á undan Bjerringbro-Silkeborg sem á leik til góða en þremur stigum á eftir næsta liði, Holstebro. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö mörk en Sveinn Jóhannsson ekkert fyrir SönderjyskE í 30-22 sigri á Fredericia. SönderjyskE er með 22 stig í 9. sæti, tveimur stigum á eftir næstu liðum sem eiga leik eða leiki til góða. Liðið á því ekki mikla von um að komast í úrslitakeppnina.
Danski handboltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira