Handbolti

Sportpakkinn: Valsmenn hafa hækkað sig um tíu sæti síðan í október

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Magnús Óli Magnússon og Stiven Tobar Valencia voru flottir í sigrinum á Fjölni í gær.
Magnús Óli Magnússon og Stiven Tobar Valencia voru flottir í sigrinum á Fjölni í gær. Vísir/Bára

Valsmenn héldu sigurgöngu sinni áfram í gærkvöldi og eru komnir upp í toppsæti Olís deildar karla eftir ellefu sigra í síðustu tólf deildarleikjum. Arnar Björnsson skoðaði sigurinn í gær og uppgang Hlíðarendaliðsins í töflunni frá því að liðið sat í 11. sætinu í október.

Þegar Valur tapaði fyrir Haukum 12. október í 6. umferðinni var uppskeran aðeins þrjú stig af 12 mögulegum. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Valur vann Fram í fyrstu umferðinni en tapaði síðan fjórum af næstu fimm leikjum, þar af þremur í röð með eins marks mun. Í gærkvöldi var botnlið Fjölnis í heimsókn í Origo-höllinni, Valsmenn voru nýkomnir úr Tyrklandsferð þar sem þeir tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum áskorendakeppninnar með tveimur sigrum á Beykoz.

Valsmenn virkuðu þreyttir framan af leik gegn Fjölni sem hafði undirtökin lengst af í fyrri hálfleik. Þegar 10 mínútur voru til leikhlés var staðan 11-9 fyrir botnliðið. Þá breyttist leikurinn og Valur skoraði sjö mörk í röð og voru með fimm marka forystu, Fjölnir skoraði síðasta markið, staðan 16-12 í hálfleik. Í seinni hálfleik hafði Valur mikla yfirburði og jafnt og þétt breikkaði bilið milli liðanna.

Valur vann að lokum 10 marka sigur, 33-23 og tóku í leiðinni 1. sætið af Haukum. Valur er með 26 stig, Haukar 25 og FH 24. Frá tapinu 12. október hefur Valur ekki tapað í deildinni. Valsmenn unnu 9 leiki í röð, gerðu jafntefli við Aftureldingu í 16. umferðinni og hafa bætt við tveimur sigrum síðan.

Þrátt fyrir að liðið hafi selt Ými Örn Gíslason og meiðsli Finns Inga Stefánssonar hafa Valsmenn staðist áhlaup annarra liða. Magnús Óli Magnússon var markahæstur í gærkvöldi, skoraði 8 mörk. Anton Rúnarsson og StivenTobarValencia skoruðu 7 mörk hvor. Daníel Freyr Andrésson varði 14 skot í markinu. Bergur Elí Rúnarsson var markahæstur hjá Fjölni með 6 mörk.

Hér fyrir neðan má sjá frétt Arnars Björnssonar um leikinn í gær með viðtölum við þjálfara liðanna.

Klippa: Sportpakkinn: Valsmenn hafa hækkað sig um tíu sæti síðan í október



Fleiri fréttir

Sjá meira


×