Formúla 1

Metin sem Hamilton getur tekið af Schumacher í ár

Bragi Þórðarson skrifar
Hamilton getur tryggt sér sinn sjöunda titil í ár.
Hamilton getur tryggt sér sinn sjöunda titil í ár. Getty

Lewis Hamilton á möguleika á sínum sjöunda heimsmeistaratitli í ár, þeim sjötta með Mercedes. Þar með getur hann jafnað met Michael Schumacher fyrir fjölda titla og orðið sigursælasti Formúlu 1 ökuþór allra tíma.

Bretinn á nú þegar fjölda meta, t.d. flestir ráspólar, flestir hringir í fyrsta sæti og flestir sigrar fyrir sama vélarframleiðanda. Í ár hefur Hamilton góðan möguleika á að bæta allavegana fimm önnur met.

Það mun þó aðeins gerast ef Mercedes liðinu tekst enn og aftur að framleiða bíl sem getur reglulega unnið keppnir. Þar sem liðið hefur unnið alla titla síðan 2014 er óhætt að gera ráð fyrir að þýska liðið verði að berjast á toppnum árið 2020.

Einnig verða alls 22 keppnir í ár, fleiri en nokkru sinni fyrr, þannig Hamilton hefur nægan tíma til að skrifa nafn sitt rækilega í sögubækurnar. Hér eru metin sem Lewis getur slegið í ár.

 

Hamilton þarf að treysta á að W11 Mercedes bíllinn geti fært honum 8 sigra eða meira í ár.Getty

Flestir sigrar - Schumacher 91, Hamilton 84

Þetta er án efa stærsta metið sem Hamilton getur slegið í ár og eru ansi miklar líkur á að það gerist. Bretinn þarf aðeins 8 sigra til að gerast sigursælasti Formúlu ökuþór allra tíma.

Fyrir nokkrum árum þótti það stórt afrek að vinna 8 keppnir á einu tímabili, en Bretanum hefur tekist að vinna 9 keppnir eða meira síðastliðin 6 ár og með 22 keppnir í ár hefur Hamilton góðan möguleika á að slá sigramet Schumacher.

Oftast endað á verðlaunapalli - Schumacher 155, Hamilton 151

Það þarf eitthvað mikið að gerast til að Hamilton slái ekki þetta met í ár. Raunar er bara spurning um hvenær en ekki hvort metið falli. Líklegast er að í hollenska eða spænska kappakstrinum muni Lewis hafa staðið á verðlaunapallinum oftar en nokkur annar.

 

Með ráspól í fyrstu keppni ársins nær Hamilton að slá metið yfir flesta ráspóla á sömu braut.Getty

Flestar keppnir endað í stigasæti - Schumacher 221, Hamilton 213

Annað met sem Hamilton mun örugglega taka af Schumacher árið 2020. Bretinn hefur endað í stigasæti í öllum keppnum síðastu þrjú ár, ef undanskilin er austurríski kappaksurinn árið 2018 þegar vélin bilaði í Mercedes bíl hans.

Þó gæti farið svo að Kimi Raikkonen nái metinu á undan Hamilton þar sem Kimi er jafn Bretanum með 213 keppnir í stigasæti. Fari svo að Alfa Romeo mætir til leiks með góðan bíl og Finninn endar í stigasæti í fyrstu 9 keppnum ársins, en Hamilton ekki, verður það ísmaðurinn sem tekur metið af Schumacher.

Flestir ráspólar á sömu braut - Schumacher 8, Hamilton 8

Michael Schumacher tókst að ná ráspól 8 sinnum á Suzuka brautinni í Japan. Ayrton Senna hefur einnig náð þessum árangri á Imola brautinni, sömu braut á magnaði Brasilíu-maðurinn lét lífið á árið 1994.

Hamilton hefur átta sinnum náð ráspól í Ástralíu og er því líklegt að þetta verði fyrsta metið sem Hamilton slær í ár þar sem Ástralíu kappaksturinn er sá fyrsti á tímabilinu. Hamilton hefur ræst fyrstur í Melbourne síðustliðin sex ár og verður því erfitt fyrir andstæðinga hans að stoppa hann í ár.

 

Hamilton hefur alls unnið 63 keppnir með Mercedes.Getty

Flestir sigrar fyrir sama lið - Schumacher 72, Hamilton 63

Eins og áður segir á Hamilton metið fyrir flesta sigra fyrir sama vélarframleiðanda þar sem Bretinn hefur alla tíð ekið með Mercedes vél fyrir aftan sig.

Lewis hóf ferilinn hjá McLaren Mercedes og vann þar 21 keppni og einn titil. Á svipaðan hátt byrjaði Schumacher hjá Benetton, vann þar 19 keppnir og tvo titla.

Þetta er það met sem er hvað ólíklegast að Hamilton takist að slá í ár, hann þarf 10 sigra úr 22 keppnum. Það er alls ekki úr myndinni að honum takist það en ef Ferrari og Red Bull verða jafn samkeppnishæf og flestir spá gæti þetta orðið strembið.

Svo eru tvo met sem Hamilton getur jafnað í ár. Takist honum að vinna í Ungverjalandi eða Kanada jafnar hann Schumacher yfir flesta sigra á sömu braut, 8 talsins.

Stærsta metið er án efa heimsmeistaratitlarnir. Titilinn árið 2020 yrði sá sjöundi á mögnuðum ferli Lewis Hamilton og myndi hann því jafna met Michael Schumacher, met sem að fyrir nokkrum árum virtist algjörlega ómögulegt að slá.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×