Handbolti

Uppgjör Henrys: Norskt kjaftshögg en guttarnir lýstu upp daginn

Henry Birgir Gunnarsson í Malmö skrifar
Norðmenn fagna í leikslok. Ófögur sjón.
Norðmenn fagna í leikslok. Ófögur sjón. vísir/epa

„Þessi byrjun var okkur til skammar,“ sagði foxillur Guðmundur Guðmundsson við mig eftir leikinn gegn Noregi áðan sem tapaðist, 31-28. Einu sinni sem oftar hitti landsliðsþjálfarinn naglann á höfuðið þar.

Íslenska liðið mætti nefnilega ekki til leiks og áður en þú gast sagt Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúr var staðan orðin 7-0 fyrir Norðmenn. Matröð í Malmö. Þessi byrjun var liðinu svo sannarlega til skammar

Enginn andi og engin orka

Það var langt frá því sami andi í liðinu og fyrir síðasta leik. Líka í upphitun. Menn inn í sér og ekki til í að öskra hvorn annan áfram. Niðurstaðan er að menn komu til leiks eins og kettlingar og frábært lið Norðmanna keyrði okkar lið í kaf. Óþolandi hvað Norðmenn eru orðnir góðir í handbolta.

Þetta var orkulaust, andlaust, enginn sýndi frumkvæði og vörnin hriplek. Það var ömurlegt að sjá bestu handboltamenn þjóðarinnar lamda af Norðmönnum án mótstöðu. Það var því miður eins og menn hefðu ekki trú á verkefninu. Í það minnsta mættu þeir ekki tilbúnir.

Guðmundur gerði hvað hann gat, hrærði upp í liðinu en munurinn var þessi sjö mörk í hálfleik, 19-12.

Sander Sagosen er óþolandi góður í handbolta.vísir/epa

Breiddin sannaði sig



Þjálfarinn ákvað að halda tryggð við bekkinn í seinni hálfleik og Aron Pálmarsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Björgvin Páll Gústavsson og Alexander Petersson byrjuðu allir á bekknum í seinni hálfleik. Skiljanlega. Þeir voru allir að valda vonbrigðum.

Með allt að vinna og engu að tapa steig varamannabekkurinn og framtíðarmenn landsliðsins upp. Þeir höfðu tröllatrú á sér, voru fullir af orku og alls óhræddir. Það var gefandi að horfa á þá spila.

Þeir velgdu Norðmönnum undir uggum og hleyptu smá spennu í þetta. Seigla Sagosen í bland við mikla virðingu dómara fyrir norska liðinu (og einstaka óþolandi leikaraskap Norðmanna) gerði það aftur á móti að verkum að ekki var hægt að stíga skrefið til fulls í endurkomunni. Strákarnir gáfu þó allt í þetta.

Ekkert uppgjör hjá Aroni og Sagosen

Þeir sem áttu von á einhvers konar uppgjöri á milli Arons Pálmarssonar og Sander Sagosen fengu ekki fyrir peninginn. Aron var aftur kominn inn í skelina eftir að hafa verið lofandi í síðasta leik. Hann lauk keppni með eitt mark og enga stoðsendinga og sat meirihluta leiksins á bekknum. Gríðarleg vonbrigði þessi frammistaða.

Sagosen sýndi aftur á móti að hann er bestur í heimi í dag. Því miður. Hann skoraði níu mörk og var með sjö stoðsendingar. Óstöðvandi vél sem virðist ekki eiga slakan leik.

Ólafur Andrés Guðmundsson hefur nýtt sénsana sína vel á þessu móti og gerði það aftur í kvöld með sex mörkum og sjö stoðsendingum. Frábær. Þess utan sterkur í vörninni. Mjög jákvætt mót hjá honum.

Guðmundur treysti á kjúklingana en lykilmennirnir ollu vonbrigðum í kvöld.vísir/epa

Framtíðin er björt



Kjúklingurinn Haukur Þrastarson spilaði í rúmar 30 mínútur í kvöld. Ekki lítið verkefni fyrir 18 ára strák að axla ábyrgð í vonlausri stöðu gegn einu besta landsliði heims. Sá sýndi enn og aftur ótrúlegan andlegan styrk og gæði. Skoraði þrjú mörk úr þremur skotum og gaf tvær stoðsendingar.

Í markinu var svo hinn 19 ára gamli Viktor Gísli Hallgrímsson og var æðislegur. Var með yfir 40 prósent markvörslu og auðvitað tók hann tvö víti. Annað hefði verið stílbrot. Framtíðin er björt og þessir strákar eru tilbúnir.

Viggó Kristjánsson er æðislegur varamaður og þarf aldrei neinn tíma til að hitna. Æðir bara inn á fullu gasi og skorar mörk. Sá hefur nýtt tímann frábærlega á þessu móti.

Elvar Örn Jónsson fær svo lokahrós dagsins. Enn og aftur með flestar stöðvanir í vörninni og hættir aldrei. Sóknarleikurinn hefur aldrei komist í gang hjá honum en hann hefur ekki látið að það trufla sig í að spila alvöru vörn. Alvöru maður.

Það er einn leikur eftir af þessu móti hjá strákunum og ég efast ekki um að þeir ætli sér út á jákvæðan hátt. Það verður allt skilið eftir á gólfinu annað kvöld.


Tengdar fréttir

Haukur: Ekkert stress í mér

Haukur Þrastarson spilað vel þegar Ísland tapaði fyrir sterku liði Noregs á EM í handbolta í dag.

Viggó: Leiðinlegt að tapa

Viggó Kristjánsson hefur komið af krafti inn í íslenska landsliðið á þessu Evrópumeistaramóti.

Elvar Örn: Hef engar skýringar

Elvar Örn Jónsson segir að tapið gegn Noregi í kvöld hafi verið mikil vonbrigði. Hann segir að byrjunin hafi farið með leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×