Blikarnir semja við tvær af sínum bestu körfuboltadætrum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2020 16:00 Isabella Ósk Sigurðardóttir (til vinstri) og Sóllilja Bjarnadóttir með penna í hendi að undirrita samningana sína. Mynd/Breiðablik
Sóllilja Bjarnadóttir og Isabella Ósk Sigurðardóttir hafa báðar skrifað undir samning við Körfuknattleiksdeild Breiðabliks. Sóllilja kemur til Breiðabliks frá KR og Isabella Ósk er að koma til baka eftir krossbandssslit. „Bæði Sóllilja og Isabella eru uppaldar í Breiðablik sem gerir þessa undirskrift enn skemmtilegri,“ segir í frétt um samningana á fésbókarsíðu Blika. Isabella Ósk Sigurðardóttir heldur upp á 23 ára afmælið sitt í ágúst en Sóllilja Bjarnadóttir er tveimur árum eldri. Isabella Ósk Sigurðardóttir meiddist illa á hné seint á árinu 2018 og kom til baka í vetur þar sem hún var með 4,6 stig og 10,0 fráköst að meðaltali í leik í átta leikjum. Fyrir meiðslin þá var hún með 9,6 stig, 10,8 fráköst og 2,2 varin skot að meðaltali í leik á 2018-19 tímabilinu. Isabella Ósk Sigurðardóttir, sem spilar sem framherji, var komin inn í A-landsliðið áður en hún meiddist. Sóllilja Bjarnadóttir er bakvörður og hefur verið í A-landsliðinu. Isabella Ósk er þrátt fyrir ungan aldur fjórði leikjahæsti leikmaður Blika í efstu deild og er einnig sú sem hefur tekið flest fráköst og varið flest skot fyrir Breiðablik í úrvalsdeildinni. Sóllilja Bjarnadóttir kemur aftur til Breiðabliks frá KR þar sem hún spilaði í fyrra og var með 5,4 stig og 1,0 stoðsendingu að meðaltali í leik. Á besta tímabili sínu með Blikum (2017-18) var Sóllilja Bjarnadóttir með 11,9 stig og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í leik. Sóllilja er fimmti stigahæsti leikmaður Blika í efstu deild og enn fremur í öðru sæti í stoðsendingum og í þriðja sæti í þriggja stiga körfum. „Körfuknattleiksdeild Breiðabliks er afar ánægð með þessa samninga. Með þessum samningum er ljóst að Breiðablik ætlar að láta mikið til sín taka á komandi tímabili,“ segir í frétt um samningana á fésbókarsíðu Blika.
Dominos-deild kvenna Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira