Norðmenn heimila eggjagjafir og tæknifrjóvganir einstæðra kvenna Atli Ísleifsson skrifar 27. maí 2020 10:51 Norska þinghúsið í Osló.
Breytingar á lögum um eggjagjafir, tæknifrjóvganir og fósturskimanir voru samþykktar á norska þinginu í gær. Stjórnarandstæðingar á þingi tóku þar höndum saman og í atkvæðagreiðslunni varð minnihlutastjórn Ernu Solberg forsætisráðherra undir. Með breytingunum verður einstæðum konum nú heimilt að gangast undir tæknifrjóvganir, eggjagjöf verður lögleg, barnshafandi konum verður staðið til boða að fara í sónar snemma á meðgöngu og NIPT-litningarannsóknir verða heimilaðar. Mikil óvissa var um hvernig atkvæðagreiðslan færi en þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna Verkamannaflokksins, Framfaraflokksins, Sósíalíska vinstriflokksins, Rauða flokksins og Græningja greiddu atkvæði með frumvarpinu. Sömu sögu er að segja um einstaka þingmenn í ríkisstjórnarflokkunum Venstre og Hægriflokki Ernu Solberg forsætisráðherra. Alls greiddu áttatíu þingmenn atkvæði gegn tillögunni um að einstæðum konum yrði heimilt að gangast undir tæknifrjóvganir, en 89 með. Varðandi lögleiðingu egggjagjafa greiddu 94 þingmenn atkvæði með að heimila slíkar gjafir en 75 gegn. Ræddi um stöðuna á Íslandi Kjell Ingolf Ropstad, formaður stjórnarflokksins Kristilega þjóðarflokksins, lýsti yfir vonbrigðum sínum sem breytingarnar eftir að niðurstaðan lá fyrir. Sagðist hann óánægður með að verið væri að opna á að sum börn geti ekki vitað um líffræðilegan uppruna sinn og að til stæði að fjármagna úr opinberum sjóðum fósturprófanir þar sem leitað væri eftir vísbendingum um Downsheilkenni. „Í Danmörku og á Íslandi, þar sem búið er að innleiða slíkar reglur, koma vart nokkur börn með Downsheilkenni í heiminn lengur,“ sagði Ropstad í samtali við VG.
Noregur Frjósemi Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira