Innlent

Ekkert smit greinst milli daga

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða.
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19 síðasta sólarhringinn hér á landi. Staðfest smit eru því enn 1804.

Á veirufræðideild Landspítalans voru tekin 58 sýni í gær. Virk smit sem vitað er um hér á landi eru þrjú, líkt og í gær, að því er fram kemur á vef landlæknis og almannavarna, covid.is

Enginn liggur inni á sjúkrahúsi með Covid-19 þessa stundina og hefur 1.791 náð bata. Fólki í sóttkví fækkar um 108 á milli daga og eru nú 789. Alls hafa nú 20.337 lokið sóttkví og 58.844 sýni verið tekin.

Tíu hafa látist af völdum veirunnar á Íslandi.

Næsti upplýsingafundur almannavarna verður á morgun klukkan 14. Á miðnætti í kvöld taka frekari tilslakanir á samkomubanni gildi. Meðal annars opna líkamsræktarstöðvar dyr sínar og fjöldi fólks sem má vera í sama rými verður aukinn í 200.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×