Mótmælendur á þaki breska þingsins 27. febrúar 2008 10:43
Hópur mótmælenda sem er á móti stækkun Heathrow flugvallar í London hefur komist upp á þak breska þingsins í Westminstar. Hópurinn Plane Stupid sem berst gegn hlýnun jarðar hefur komið fyrir borðum með slagorðum á, meðal annars gegn því að þriðja flugbrautin verði byggð.Í dag fer fram lokaumræða á þinginu um stækkun Heathrowflugvallar. Þá er spurningatími forsætisráðherrans nú í hádeginu.Hópurinn segist hafa undir höndum trúnaðarskjöl sem fengin voru eftir nýjum lögum um frelsi til upplýsinga. Í þeim komi fram að ríkisstjórnin hafi þegar ákveðið að byggja þriðju flugbrautina og sjöttu flugvallarbygginguna á flugvellinum.Leo Murray einn mótmælenda talaði við Sky fréttastofuna af þaki þinghússins. Hann sagði að hópurinn hefði fengið sér tebolla á kaffistofunni og síðan tekið lyftuna upp á þakið. Atvikið hefur vakið áleitnar spurningar um öryggi en lengi hefur verið óttast að þingið gæti orðið skotmark hryðjuverkamanna."Við erum komin að rótum lýðræðis til að benda á hversu fáránlega ólýðræðisleg þessi ríkisstjórn er orðin," sagði hann og benti á að áætlanirnar væru í algjöru ósamræmi við stefnu Breta í loftslagsmálum.Fyrir tveimur dögum mótmæltu Greenpeaceliðar á Airbus A320 farþegaflugvél á Heathrow gegn stækkun vallarins.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira