Skoðun

Covid-19 er Tsjernobyl hjúkrunarfræðinga

Tómas Guðbjartsson skrifar

Það eru ýmis líkindi með Tsjernobyl-slysinu 1986 og Covid-19 faraldrinum nú - enda óvinurinn í báðum tilvikum ósýnilegur. Í Tsjernobyl var fjöldi manna sendur inn í brennandi kjarnorkuverið til að sprauta á rústirnar vatni og minnka þannig geislunina.

Þeir fengu nafnið „Chernobyl liquidizers" og létust margir þeirra úr geislun og afleiðingum hennar. Síðar voru þessir einstaklingar gerðir að þjóðhetjum og fjölskyldur þeirra fengu bætur - enda talið að aðgerðirnar hafi bjargað óteljandi mannslífum um gjörvalla Evrópu.

 Það er enginn sem sérstaklega óskar eftir því að annast sýkta Covid-19 sjúklinga, sjúkdóm sem þú getur fengið sjálfur og verið banvænn. Fáir eru í meiri smithættu en heilbrigðisstarfsfólk, en á Ítalíu eru þeir t.d. 9% Covid-smitaðra. En þetta gerum við samt - enda engir aðrir betur til þess fallnir og starfið hugsjón.

Þetta á ekki síst við um stærsta hópinn, hjúkrunarfræðingana, sem eru öðrum fremur „slökkviliðsmenn" (liquidizer) Covid-19 faraldursins. Það er með ólíkindum að stjórnvöld ætli að láta það viðgangast að skerða laun þeirra í þessu ástandi. Og það í miðju slökkvistarfi - þegar eldurinn hefur ekki einu sinni náð hámarki. 

Hvílíkur roluháttur sem truflar allt hugsandi fólk. Best væri að semja strax en þangað til verður að aflétta þessum óskiljanlega og hallærislega sparnaði - og í staðinn borga þeim og öðrum í framlínunni launabætur fyrir álagið. Þær/þeir eiga skilið virðingu og það alls ekki sjálfgefið að fórna eigin heilsu fyrir hugsjónina eina saman.

Höfundur er prófessor í skurðlækningum. Pistill birtist fyrst á Facebook-síðu höfundar.




Skoðun

Skoðun

Drasl

Hafþór Reynisson skrifar

Sjá meira


×