Viðskipti innlent

Hálfsársbirgðir af handspritti seldust upp á fjórum dögum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Handþvottur hefur verið landmönnum hugleikinn síðustu daga, ef marka má stóraukna sölu á handspritti.
Handþvottur hefur verið landmönnum hugleikinn síðustu daga, ef marka má stóraukna sölu á handspritti. Getty/Glasshouse

Tilmæli Sóttvarnarlæknis um að huga að almennu hreinlæti virðast hafa skilað sér í stóraukinni sprittsölu. Apótek og heildsalar segir handspritt nú renna út sem aldrei fyrr, hálfsársbirgðir seldust þannig upp á fjórum dögum hjá einum heildsalanum. Þá hafa framleiðendur spýtt í lófana til að koma í veg fyrir sprittskort í landinu.

Þegar farið er inn á heimasíðu Landlæknisembættisins tekur á móti manni stór mynd af handþvotti - og það ekki að ástæðulausu. Lýst hefur verið yfir óvissustigi vegna útbreiðslu Wuhan-kórónaveirunnar svokölluðu, þó svo að enn hafi ekki orðið vart við tilfelli hennar hér á landi. Til að sporna við frekari dreifingu veirunnar leggur sóttvarnalæknir til nokkrar aðgerðir og er þar efst á blaði að „gæta vel að almennu hreinlæti, sérstaklega handþvotti.“

Íslendingar og gestir þeirra virðast hafa tekið sóttvarnalæknir á orðinu. Handspritt selst nú sem aldrei fyrr og skiptir þar engu hvort um sé að ræða ferðaeiningar eða stærri brúsa.

Síðasta brettið í dalnum

Karen Elva Smáradóttir, vörumerkja- og markaðsstýra hjá heildsölunni CU2, sagðist þannig vera að selja síðustu sprittbrúsana af síðasta vörubrettinu þegar Vísir náði á hana. Heildsalan hafi boðið upp á tvær stærðir af handspritti, ferðastærð og svo tæplega 300ml brúsa, auk tveggja gerða af sótthreinsandi klútum - nú sé aðeins önnur gerðin af klútunum eftir. Hálfsársbirgðir af spritti hafi gufað upp á tveimur vikum og næsta sending sé ekki væntanleg fyrr en í mars eða apríl.

Handspritt rennur út hjá Lyfju í Hafnarstræti, rétt eins og öðrum apótekum.Lyfja

Al­freð Ómar Ísaks­son, lyfsali hjá Lyfju í Hafnarstræti, segist ekki hafa farið varhluta af auknum handsprittsáhuga. Hann hafi haldist í hendur við aukna sölu á hvers kyns andlitsgrímum á síðustu dögum, eins og fjölmiðlar hafa greint frá. Íslendingar og erlendir ferðamenn, ekki síst Kínverjar, hafa keypt handspritt í miklu magni á síðustu dögum og vikum. Sambærilega sögu er að segja frá Lyfjaveri á Suðurlandsbraut, spritt og grímur rjúka út.

Framleiðendur hafa að sama skapi þurft að bregðast við aukinni ásókn í handspritt. Þannig sagðist talsmaður Pharmarctica á Grenivík að það hafi orðið „greinileg sprenging“ í sölunni í síðustu viku. Því hafi verið tekin ákvörðun um að spýta í lófana og auka framleiðsluna. Stærðarinnar pöntun hafi verið send frá Grenivík á mánudag og er hún væntanleg til höfuðborgarsvæðisins í dag.

Pumpan kvödd

Richard Kristinsson, framkvæmdastjóri Mjallar Friggjar, segir fyrirtækið alla jafna sjá sölukipp á þessum árstíma vegna hinnar árlegu inflúensu - „en aldrei neitt í líkingu við þetta,“ segir Richard.

14 þúsund handsprittspumpubrúsar hafa selst frá mánaðamótum.mjöll frigg

Mjöll Frigg hafi þannig selt 14 þúsund stykki af 600 millilítra handsprittsbrúsum frá mánaðamótum. „Við höfum miðað við að 6 þúsund brúsar séu svona um það bil þriggja mánaða skammtur. Við erum því búin að selja rúmlega hálfs árs skammt á fjórum dögum og þar að auki eru aðrir 14 þúsund brúsar í pöntun,“ segir Richard.

Danól er dreifingaraðili Mjallar Friggjar og selur vörur fyrirtækisins í öllum helstu dagvöruverslunum, bensínstöðvum, til Rauða krossins svo fátt eitt sé nefnt. Þar að auki selur fyrirtækið til heilbrigðisstofnanna en Richard segir að þar sé ekki enn farið að gæta aukningar. Hann áætlar að það sé vegna þess að heilbrigðisgeirinn sé vanur því að kaupa mikið magn í einu og eigi því líklega ennþá góðan lager af spritti.

Þrátt fyrir að Mjöll Frigg þurfi að auka framleiðslu sína vegna eftirspurnarinnar segir Richard fyrirtækið vel til þess búið. Það eigi ennþá um 60 þúsund lítra af etanóli og því sé það frekar tíma- en efnisskortur sem gæti staðið aukinni framleiðslu fyrir þrifum, en að jafnaði geti Mjöll Frigg framleitt um 1000 til 1200 handsprittsbrúsa á klukkustund. „Ætli við þurfum ekki að bæta við nokkrum klukkutímum til að mæta þessu, ég efast ekki um að mitt fólk sé alveg til í að fá greidda smá yfirvinnu,“ segir Richard.

Þó svo að etanólið sé fyrir hendi er þó ekki öll sagan sögð. „Við fáum ekki pumpur,“ segir Richard og bætir við að fyrirtækið hafi þó pantað tvöfaldan skammt af handpumpum í ár eftir að hafa lent í kröggum í fyrra. Nú séu þær pumpubirgðir hins vegar að klárast og þau skilaboð borist frá Kína að ekki sé von á fleiri pumpum.

Richard segir að Mjöll Frigg muni því bregða á það ráð að selja handsprittsbrúsana sína með smellutappa, fyrirtækið sitji á hundrað þúsund tappa lager og ætti það því ekki að vera vandamál. Hann minnir á að umræddar pumpur eru margnota og því sé óþarfi að gráta pumpuskort. Það megi vel nýta gamlar pumpur við handþvott næstu vikna.


Tengdar fréttir

Hefja undirbúning Landspítala fyrir mögulegt smit

Landspítalinn hefur nú hafið undirbúning til þess að geta tekið á móti fólki smituðu af Wuhan-kórónaveirunni. Sérstök gámaeining verður sett upp með það fyrir augum að taka á móti fólki sem mögulega er smitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×