Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi 19. apríl 2013 15:37 Héraðsdómur Norðurlands eystra.
Tuttugu ára gamall maður var dæmdur í gær í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir manndráp af gáleysi þegar hann ók á þrjár unglingsstúlkur á Siglufirði í nóvember árið 2011 undir áhrifum kannabisefna. Stúlkurnar voru nýkomnar út úr skólabifreið þegar þær fóru yfir götu en þá kom maðurinn, sem var átján ára gamall þegar atvikið átti sér stað, og ók á þær. Ein þeirra lést nær samstundis, önnur stórslaðist á meðan sú þriðja slasaðist minna. Pilturinn neitaði fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystri að hafa verið undir áhrifum fíkniefna, en játaði þó að hafa reykt kannabisefni nokkrum dögum áður. Sjálfur vildi pilturinn meina að þarna hefði verið um óhappatilviljun að ræða, en dimmt var úti auk þess sem stúlkurnar gengu fyrirvaralaust út á götu og í veg fyrir bílinn. Í niðurstöðu dómsins segir aftur á móti að það sé niðurstaða dómarans að maðurinn hefði ekki hagað akstri sínum í samræmi við þær skyldur sem kveðið er á um í varúðarreglum umferðarlaganna. Að auki sá maðurinn nemendur koma út úr bílnum áður en hann ók upp að hlið skólabifreiðarinnar. Ástæðan fyrir því að dómur mannsins er skilorðsbundinn er vegna ungs aldurs mannsins, en hann var átján ára gamall þegar óhappið átti sér stað. Þá þótti dómara einnig rétt að skilorðsbinda refsinguna þar sem maðurinn hefði átt við erfiðleika að stríða eftir slysið. Þá vekur einnig athygli að dómurinn, eins og hann birtist á vefnum Dómstólar.is, er nafnlaus, það er, nafn sakborningsins kemur ekki fyrir í honum. Þegar Vísir hafði samband við Héraðsdóm Norðurlands eystra fengust þau svör að það hefði einnig verið gert vegna ungs aldurs mannsins þegar hann ók á stúlkurnar með þeim afleiðingum að ein þeirra lést.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira