Sigríður fer frá Ikea til Samtaka iðnaðarins Haraldur Guðmundsson skrifar 1. febrúar 2017 09:13
Samtök iðnaðarins (SI) hafa ráðið Sigríði Heimisdóttur í starf sviðsstjóra hugverkasviðs SI. Samkvæmt tilkynningu samtakanna hefur Sigríður störf 1. apríl næstkomandi. Tekur hún við starfinu af Elínrós Líndal sem hefur gegnt því síðustu tvö ár. „Sigríður Heimisdóttir hefur undanfarin 5 ár starfað hjá IKEA í Svíþjóð þar sem hún hefur gegnt starfi þróunarstjóra smávöru í 3 ár og síðar verkefnastjóri sértækra nýþróunarverkefna. Auk þess var hún verkefnastjóri alls samstarfs við hönnunar og nýsköpunarstofnanir á vegum höfuðstöðva IKEA. Hún stofnaði hönnunar- og ráðgjafarfyrirtækið Hugvit&Hönnun árið 1995 og starfaði þá fyrir mörg íslensk og alþjóðleg fyrirtæki, þar á meðal IKEA. Frá árinu 2000 til 2008 starfaði hún sem vöruhönnuður hjá IKEA þar til hún hóf störf sem hönnunarstjóri hjá Fritz Hansen í Danmörku. Árið 2010 stofnaði hún Labland, hönnunarstofu í Malmö í Svíþjóð sem vann fyrir mörg alþjóðleg fyrirtæki,“ segir í tilkynningu samtakanna. Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir ánægjulegt að fá Sigríði til liðs við samtökin. „Sigríður hefur mikla reynslu af stjórnun í alþjóðlegu umhverfi sem er veruleiki margra okkar aðildarfyrirtækja. Hún kemur að auki með reynslu og þekkingu á sviði vöruhönnunar og nýsköpunar sem eru þættir sem hafa vaxandi vægi í öllum iðnaði. Á hugverkasviði SI hefur verið lögð áhersla á að við Íslendingar sjáum tækifærin í breyttri neysluhegðun og áhrifum fjórðu iðnbyltingarinnar. Sigríður hefur leiðtogahæfileika og kraft til að leiða það verkefni.“
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Vilja selja Landsbankann Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Viðskipti innlent Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira