Blatter tekur fyrir útrás ensku úrvalsdeildarinnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. febrúar 2008 22:58 Sepp Blatter, forseti FIFA. Nordic Photos / Getty Images
Sepp Blatter segir að útrás ensku úrvalsdeildarinnar verði aldrei að veruleika svo lengi sem hann verður í starfi forseta Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA. Fyrir nokkru samþykktu fulltrúar allra ensku úrvalsdeildarliðanna að skoða þann möguleika að bæta við einni umferð við tímabilið og að hún færi fram í borgum víðs vegar um heiminn. Blendin viðbrögð hafa verið við þessu en gagnrýnendur þessa hafa helst sagt að um sé að ræða peningagræðgi félaganna og ekkert annað. Stuðningsmenn enskra félaga eru einnig afar mótfallnir þessu fyrirkomulagi. Blatter sagði í viðtali við fréttastofu BBC að þessar áætlanir gætu einnig komið enska knattspyrnusambandinu illa en það hyggst sækja um að halda HM í knattspyrnu árið 2018. „Þessi áætlun tekur ekki tillit til stuðningsmanna félaganna og gefur til kynna að félögin vilji aðeins gera þetta til að ná sér í pening," sagði Blatter. „Þetta mun aldrei gerast, alla vega ekki svo lengi sem ég er forseti FIFA." „Enska úrvalsdeildin er ríkari en aðrar deildir og ber því meiri ábyrgð en aðrar deildir. Þetta stríðir gegn þeirri ábyrgð. Þetta er eitthvað sem ég hef engan skilning á og það er ljóst að framkvæmdarstjórn FIFA mun aldrei samþykkja þessa áætlun." Framkvæmdarstjóri ensku úrvalsdeildarinnar, Peter Scudamore, varði þessa áætlun um helgina og sagði að FIFA gæti aldrei komið í veg fyrir þetta. „Það er ekki satt," sagði Blatter um ummæli Scudamore. „Jafnvel þótt enska knattspyrnusambandið myndi leyfa þetta þyrftu knattspyrnusambönd þeirra landa þar sem leikirnir ættu að fara fram að samþykkja þetta og það yrði mjög erfitt að fá það í gegn." „Þar að auki myndi framkvæmdarstjórn FIFA beita reglugerð sem segir að hún megi koma í veg fyrir hvers kyns áætlanir sem myndi skaða málstað knattspyrnunnar og misnota hana." „Þetta er misnotkun. Enska úrvalsdeildin vill verða ríkari og auka mikilvægi deildarinnar."
Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Sjá meira