Þórey Rósa: Hálf ótrúlegt að okkur tókst það Anton Ingi Leifsson skrifar 4. desember 2018 20:00
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér sæti í umspili um laust sæti á HM 2019 eftir rosalegan sigur á Azerbaídsjan, 49-18, um síðustu helgi. Leikurinn var síðasti leikur Íslands í undankeppninni og Þórey Rósa Stefánsdóttir, einn reynslumesti leikmaður liðsins, segir að þetta hafi verið kærkomið. „Líka það að vita fyrir leikinn að þú þurfir að vinna leikinn með 27 mörkum að minnsta kosti. Það var hálf ótrúlegt að okkur tókst það en við lögðum upp með plan; tíu mínútur í einu og sjá hvort að það myndi fleyta okkur,“ sagði Þórey Rósa í samtali við Guðjón Guðmundsson. Ísland spilaði á þremur stórmótum í röð, frá 2010 til 2012, en síðustu ár hafa verið liðinu erfið og illa hefur gengið að ná góðum úrslitum. „Við erum búin að ganga í gegnum kynslóðaskipti og óléttur og allan blessaðan pakkann. Við verðum að ná að komast á þennan stað. Það er hundleiðinlegt að vera í botnbaráttu í einhverjum undanriðlinum.“ „Við viljum vera að berjast um að komast inn á stórmót og þetta var fyrsta skrefið í áttina að því. Liðið er ungt en samt sem áður ekkert brjálæðislega ungt miðað við önnur landslið.“ Viðtalið í heild sinni má sjá í Sportpakkanum hér að ofan.
Handbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á Barna Fan-Zone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Sjá meira