Kóngurinn ætlar að mæta í þyrlu Gunnar Leó Pálsson skrifar 16. ágúst 2014 12:00 Jósef „Presley“ Ólason lofar góðu stuði á Elvis-hátíðinni í kvöld. vísir/stefán „
Já, auðvitað lifir kóngurinn og hann mætir, ætli hann komi ekki í þyrlu,“ segir Jósef „Presley“ Ólason, stofnandi Elvisklúbbsins á Íslandi, spurður út í hvort Elvis Presley sjálfur mæti á hátíðina í kvöld. Klúbburinn stendur fyrir mikilli hátíð í kvöld á skemmtistaðnum Gullöldin í Grafarvogi þar sem alvöru Elvis-stemning mun ráða ríkjum. „Við verðum með ýmislegt í gangi. Við byrjum á því að horfa á Elvis-tónleika á breiðtjaldi, svo bjóðum við upp pitsuhlaðborð og alvöru Elvis-samlokur. Við verðum svo með karókí þannig að það geta allir tekið lagið,“ útskýrir Jósef. Jósef ætlar að taka nokkur lög sjálfur ásamt Magnúsi Paul Korntop en hann hvetur fleiri til að taka lagið. „Menn mega ekki vera hræddir þó ég sé bestur,“ segir Jósef og hlær. Hann hvetur alla aðdáendur kóngsins til þess að mæta og njóta kvöldsins. „Ég vonast til þess að sjá sem flesta, það væri gaman að sjá fleiri eftirhermur,“ bætir Jósef við, en hann hefur verið talinn ein besta Elvis-eftirherma landsins. „Það eru margar eftirhermur sem vilja græða á honum og eru að lita hárið og fara í húðstrekkingu. Mér finnst bara nóg að vera með svart hár og bartana.“ Það er nóg fram undan hjá klúbbnum því stórir hlutir er á döfinni. „Eftir þetta kvöld förum við að skipuleggja stórafmæli Elvisklúbbsins því við verðum fimmtán ára á næsta ári og ætlum að fagna því með stæl,“ bætir Jósef við. Frítt er inn á Elvis-hátíðina í kvöld og hefst hún klukkan 21.00 á Gullöldinni í Grafarvogi.
Mest lesið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Lífið Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Lífið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Lífið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Bíó og sjónvarp Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sjá meira