Lucas di Grassi á ABT kom fyrstur í mark í Formúlu E kappakstrinum í París. Jean-Eric Vergne varð annar á DS Virgin bílum og Sebastian Buemi varð þriðji á Renault e.dams.
Di Grassi var lítið ógnað alla keppnina. Baráttan um annað sæti var hins vegar afar hörð á milli DS Virgin ökumannanna og Renault e.dams mannanna, Buemi og Nicolas Prost sem varð fimmti.
Di Grassi leiðir því heimsmeistarakeppni ökumanna áfram en hann hafði eins stigs forskot fyrir keppnina. Hann leiðir nú með 11 stiga forskot á Buemi.
Sam Bird var á ráspól eftir afar góðan brautartíma í tímatökunni, fyrr í dag. di Grassi og Vergne komust fram úr Bird í ræsingunni.
Gulum flöggum var svo veifað þegar Dragon Racing bíl Loic Duval var ýtt í skjól. Bíll hans bilaði á sjötta hring.
Halarófa myndaðist á eftir Vergne í öðru sæti. Bird var skammt á eftir og svo í kringum 20. hring var Renault liðið búið að ná DS Virgin liðinu. Bird og Vergne snertust rétt áður en hópurinn skipti um bíla á þjónustusvæðinu.
Staðan breyttist ekkert á þjónustusvæðinu en hópurinn var alveg jafn þéttur og hann hafði verið fyrir bílaskiptin.
Baráttan hélt áfram en ökumenn átt afar erfitt með að komast fram úr á brautinni. Bird fór of djúpt í beygju og þurfti að snúa við og féll niður um þrjú sæti við atvikið.
Qing Hua Ma lenti á varnarvegg í Aguri bílnum í sinni fyrstu keppni. Öryggisbíllinn kom þá út á hring 42 og fór fyrir ökumönnum til endaloka en keppnin var 45 hringir.
Næsta Formúlu E keppni fer fram í Berlín 21. maí.
Lucas di Grassi fyrstur í mark í París
Tengdar fréttir

Rosberg sullaði í kampavíni í Kína | Sjáðu allan þáttinn
Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson fóru yfir allt sem gerðist í þriðju Formúlukeppni ársins í Kína.

Konur hafa ekki líkamlega burði til að keyra formúlubíl
Hinn umdeildi yfirmaður Formúlu 1, Bernie Ecclestone, er búinn að gera allt brjálað með ummælum sínum um möguleikann á því að konur keppi í F1.

Pirelli fær 25 prófunardaga á ári
Alþjóðlega akstursíþróttaráðið hefur samþykkt að dekkjaframleiðandinn Pirelli fái 25 daga prófanir á nýjum dekkjum með nýjustu Formúlu 1 bílunum hverju sinni.

Bílskúrinn: Keisarinn í Kína
Nico Rosberg vann sjöttu keppnina í röð í Formúlu 1 kappakstrinum í Kína. Rosber var sannkallaður keisar í Kína. Hann var einn og yfirgefinn í forystunni alla keppnina.