Roche og deCode þróa lyf 13. október 2005 15:02
Íslensk erfðagreining hefur tilkynnt um samstarf við lyfjafyrirtækið Roche til þriggja ára um þróun og markaðssetningu á lyfjum til að koma í veg fyrir og meðhöndla heilablóðfall og aðra æðasjúkdóma. Lyfið á að hindra starfsemi ensímsins fósfódíesterasa 4. Ensímið hefur áhrif á fjölgun fruma í æðarveggjum sem leiðir til æðarkölkunar og heilablóðfalls. Lyfið á að hemja starfsemi ensímsins og koma þannig í veg fyrir heilablóðfall. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að heilablóðfall sé algengasta orsök fötlunar í vestrænum þjóðfélögum og þriðja algengasta dánarorsökin. Ekki sé til lækning við heilablóðfalli og því hafi þeir tekið þá nálgun að finna fyrirbyggjandi leiðir. Þá segir hann að hægt sé að finna áhættuhópinn með erfðarannsóknum, auk þeirra sem hafa háan blóðþrýsing, eða ef fjölskyldumeðlimur hefur orðið fyrir heilablóðfalli. "Héðan í frá reiknum við með að það muni taka fimm til sjö ár að koma lyfinu á markað," segir Kári. En meðaltími til þróunar lyfja er 15 ár. Kári segir að vegna erfðafræðirannsókna geti fyrirtækið sleppt ákveðnu tilraunastarfi sem önnur fyrirtæki leggi í, meðal annars með tilraunir á dýrum. Það stytti ferlið í þróun lyfja verulega. Verð á hlutabréfum í deCode tóku kipp upp á við í viðskiptum fyrir opnum markaðar í Bandaríkjunum í gær. Bréfin fóru hæst í 6,74 Bandaríkjadali á Nasdaq markaðinum í gær en gengið gaf eftir þegar leið á daginn. Hlutabréf í deCode hafa farið heldur lækkandi á síðustu vikum og eru talsvert lægri en í febrúar. Þá fór gengi bréfanna í 13,20 dali og hafa því lækkað um næstum helming frá þeim tíma.
Mest lesið Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira