Sátt í Aserbaídsjan Zakir Jón Gasanov skrifar 23. maí 2012 06:00 Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armenum og hefur hún tilheyrt Armenum síðan. Borgin var hjarta Aserbaídsjan. Með ríka tónlistarhefð. Falleg borg sem mikil eftirsjá er í. Þótt búið sé að semja um frið milli þjóðanna, þá eru enn átök á milli þeirra á landamærunum. Skotum er oft hleypt af í þessum átökum og stundum deyja menn í þeim. Slíkur er núningurinn á milli þeirra. Obama, forseti Bandaríkjanna, og Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands, hafa átt nokkra fundi með forsetum Aserbaídsjan og Armeníu til að ná fram friði, en án árangurs. Vonir standa til að Pútín geti lagt sitt á vogarskálarnar og hjálpað til svo þjóðirnar tvær geti náð sáttum. Þetta er saga lands míns. Aserbaídsjan er eitt af lýðveldum gömlu Sovétríkjanna, á Kákasusskaganum, við Kaspíahaf. Níu milljónir búa í landinu í dag, þar af eru 1,5 milljón íbúanna, samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu Þjóðanna, flóttamenn. Innlendir flóttamenn sem flúið hafa m.a. þessi átök. Aserbaídsjan missti um 20% af sínu landssvæði til nágrannalanda sinna í þessum stríðsátökum. Nagorno-Karabakh, Armenía og önnur nágrannaríki hafa lagt undir sig mikið landsvæði sem tilheyrði áður gamla Aserbaídsjan. Allt hefur þetta verið að gerast undanfarin 20 ár. En í þessari viku fer Eurovision-keppnin fram í Bakú. Keppni sem setur Aserbaídsjan í sviðsljós heimsins. Í það minnsta Evrópu. Að sjálfsögðu mun þjóðin fylkja sér um þennan atburð og kynna sig sem best. En það er ekki allt sem sýnist. Armenar munu t.d. ekki taka þátt í keppninni í ár af augljósri ástæðu. Ég og konan mín skilgreinum okkur bæði sem Íslendinga og Asera, erum bæði fædd og uppalin í Bakú. Hjarta okkar slær í þessum tveimur löndum. Börn okkar eru fædd á Íslandi og tala bæði íslensku og asersku á heimilinu. Frábærir krakkar sem við viljum gera allt fyrir. En að sjálfsögðu vil ég mínu gamla landi allt hið besta og mun ég tala máli þess eins og hægt er. Ég vil vekja athygli Alþingis Íslendinga á að mitt gamla land, Aserbaídsjan, á í þessum erjum við sína nágranna, Armena. Alþingi Íslendinga getur hjálpað til og beitt sér svo friður geti komist á í þessum heimshluta, með því að sýna frumkvæði og styrk sinn, eins og það gerði í málefnum Eystrasaltsríkjanna Lettlands, Eistlands og Litháen á sínum tíma. Og nú nýlega hefur Ísland beitt sér í málefnum Palestínu með því að viðurkenna tilvist ríkisins, fyrst allra ríkja í heiminum. Það er borin virðing fyrir Íslendingum á alþjóðavettvangi fyrir að sýna djörfung og dug í svona málum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar