Skoðun

Heilsu­gæslan mið­aldra

Hildur Svavarsdóttir skrifar

Heilsugæslan Hlíðum á 40 ára starfsafmæli í ár. Stöðin tók formlega til starfa þann 16. maí 1986. Þá var ráðinn yfirlæknir, hjúkrunarforstjóri og móttökuritarar og skráning skjólstæðinga hófst á stöðina. Í júní það ár hófst læknismóttaka tvisvar í viku til að byrja með. Smátt og smátt bættist í hópinn; læknaritari, hjúkrunarfræðingur og læknir, ungbarnavernd tók til starfa og mæðravernd auk heimahjúkrunar og svo skólahjúkrun í Hlíðaskóla 1. september 1986. Stöðin hóf starfsemi í hluta húsnæðis í Drápuhlíð, inni í miðri íbúagötu. Smátt og smátt tók starfsemin yfir allt húsið sem varð að lokum of lítið. Það var því mikill léttir sumarið 2023 þegar stöðin flutti í stærra húsnæði við Skógarhlíð.

Það er merkilegt að hugsa til þess að fyrsta formlega heilsugæslustöðin á höfuðborgarsvæðinu tók til starfa árið 1977 svo fyrirbærið heilsugæslustöð eins við þekkjum flest í dag er rétt hálfrar aldar gamalt hér á höfuðborgarsvæðinu. Á þessu tímabili hefur mjög mikið gerst í starfsemi heilsugæslustöðva eins og sést vel í starfsemi Heilsugæslunnar Hlíðum.

Í dag eru ríflega 15.500 skjólstæðingar skráðir á stöðina. Starfsmenn eru nær 30 talsins, læknar, námslæknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, ritarar, sálfræðingar og fljótlega bætist vonandi við félagsráðgjafi. Þessir starfsmenn sinna meðal annars móttöku skjólstæðinga alla virka daga, mæðravernd, ungbarnavernd, heilsuvernd aldraðra og skólahjúkrun auk kennslu nema. Það er því óhætt að segja að starfsemin hafi vaxið og dafnað og það er ljóst að það er mikil þörf fyrir þjónustu stöðvarinnar.

Eitt af verkefnum Heilsugæslunnar Hlíðum núna á afmælisárinu er að vera í forsvari fyrir skipulagningu Fræðadags Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem verður haldinn 13. nóvember. Yfirskrift dagsins er jöfnuður í heilsu. Margar rannsóknir hafa sýnt að öflug heilsugæsla í nærumhverfi er mjög mikilvæg til að auka jöfnuð í samfélaginu svo það er vel við hæfi að heilsugæsla sem hóf starfsemi sína í húsi í miðri íbúagötu standi í stafni á slíkum degi.

Vonandi verður engin miðaldurskrísa í starfsemi heilsugæslunnar og að stjórnendur og stjórnvöld beri gæfu til að hlúa vel að heilsugæslunni og starfsfólki hennar því það skiptir miklu máli fyrir fólkið í landinu sem vill koma til heilsugæslunnar og fá mikilvæga og oft lífsnauðsynlega þjónustu.

Höfundur er forstöðumaður Heilsugæslunnar Hlíðum.




Skoðun

Sjá meira


×