Viðskipti erlent

Deutsche bank tók fimm ár í að tilkynna grunsamlegar færslur Danske bank

Kjartan Kjartansson skrifar
Höfuðstöðvar Deutsche bank í Franfurkt þar sem húsleit var gerð í síðasta mánuði.
Höfuðstöðvar Deutsche bank í Franfurkt þar sem húsleit var gerð í síðasta mánuði. Vísir/EPA
Þýsk yfirvöld rannsaka nú hvers vegna Deutsche bank tilkynnti ekki um fleiri en milljón grunsamlegar fjármagnsfærslur sem tengdust danska bankanum Danske bank fyrr en fimm árum eftir að uppljóstrari gerði viðvart um meiriháttar peningaþvætti.

Reuters-fréttastofan greinir frá því að Deutsche bank hafi ekki tilkynnt um 1,1 milljón færslna fyrr en í febrúar á þessu ári. Rannsakendur peningaþvættisyfirvalda og saksóknara kanni nú hvers vegna það tók Deutsche svo langan tíma. Færslurnar eru frá árunum 2014 til 2015 og tengjast Rússland og fyrrum Sovétlýðveldum.

Til rannsóknar er hvort að starfsmenn eða stjórnendur Deutsche hafi lagt blessun sína yfir færslurnar og hvort þeir hafi reynt að hylma yfir það. Reynist svo vera gætu þeir átt yfir höfðu sér ákærur.

Danske bank hefur viðurkennt að um 220 milljarðar dollara, jafnvirði um 27.500 milljarða íslenskra króna, hafi verið þvættaðir í gegnum útibú bankans í Eistlandi frá 2007 til 2015. Bankinn var rekinn úr landinu fyrr á þessu.

Flestar færslur Danske bank fóru í gegnum Deutsche bank. Þýskir saksóknarar gerðu húsleit í höfuðstöðvum þýska bankans í tengslum við peningaþvættið í síðasta mánuði. Forsvarsmenn Deutsche tjá sig ekki um dráttinn á tilkynningum til yfirvalda um færslurnar en segjast hafa bundið enda á samstarfið við Danske bank árið 2015 og hert eftirlit sitt með peningaþvætti síðan.


Tengdar fréttir

Fyrrverandi forstjóri Danske bank ákærður

Húsleit er einnig sögð hafa verið gerð á heimili Thomas Borgen í mars vegna rannsóknar á stórfelldu peningaþvætti í eistnesku útibúi Danske bank á árunum 2007 til 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×