Pílukast og pönnukökur trekkja að á Landsmót 50+ UMFÍ kynnir 24. júní 2019 13:15 Pönnukökubaksturinn er vinsæl keppnisgrein á landsmóti. „
Pílukast er nýjasta greinin hjá okkur en landsmótin eru í stöðugri þróun. Stígvélakastið og pönnukökukeppnin halda þó alltaf vinsældum, sérstaklega þegar kemur að því að smakka pönnukökurnar, enda er nauðsynlegt að hafa gaman af þessu og skemmta sér. Landsmót 50+ er ekki háalvarleg keppni,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ. Framundan er Landsmót 50+ sem fram fer í Neskaupstað næstu helgi, undirbúningur er á lokastigum og koma fjölmargir sjálfboðaliðar að því, bæði ungmennfélagsfólk af öllu landinu og heimafólk í Fjarðabyggð.Ómar Bragi Stefánsson, hefur stýrt mótum UMFÍ frá árinu 2004.Fjölbreytni er alltaf höfð að leiðarljósi á mótum UMFÍ. Á Landsmóti UMFÍ 50+ í Neskaupstað er hægt að keppa í hátt í 20 greinum og prófa ýmsar nýjar. Þar á meðal er fótboltapanna, crossnet, sjósund og margt fleira. Jafnframt eru sumar greinar opnar fólki frá 18 ára aldri, þar á meðal er Garðahlaup, þar sem hlaupið verður ofan á göngustígum á ofanflóðamannvirkjum, lomber og frisbígolf. Skipulag og stjórn allra landsmóta UMFÍ hefur verið í höndum Ómars síðustu fimmtán ár. „Fyrsta minningin mín er frá landsmóti á Sauðárkróki, árið 1971 en faðir minn var þá í landsmótsnefndinni. Ekki hefði nú hvarflað að mér að það yrði síðar mitt aðalstarf. Mótið í Neskaupstað verður tuttugasta og sjöunda landsmótið sem ég stýri, þó er ég nú ekkert svakalega gamall,“ segir Ómar hress en hann hefur veri í forsvari fyrir mót UMFÍ frá árinu 2004. „Ég er löngu farinn að funda með sveitarfélögum vegna mótanna 2020,“ bætir hann við og segir talsverða eftirspurn eftir því að fá að halda landsmót.„Sveitarfélögin sækja um til UMFÍ og stjórn úthlutar mótum. Unglingalandsmótin hafa verð haldin frá árinu 1992 og í ár fer það fram á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina. Landsmót 50 + hefur farið fram árlega síðan 2011 og stóra landsmótið hefur verið haldið á nokkurra ára fresti frá árinu 1909. Nú verður það haldið á tveggja ára fresti en með algjörlega breyttu sniði. Það næsta fer fram í Kópavogi árið 2020. Hvert mót er áskorun. Mótið í Neskaupstað er þar engin undantekning. Það verður sérstaklega skemmtilegt og forréttindi að taka á móti nokkur hundruð manns, keppnisfólki allt upp í áttrætt og rúmlega það,“ segir Ómar og bætir við að hinn eini sanni ungmennafélagsandi svífi yfir vötnum, við undirbúning allra móta og auðvitað á þeim líka.„Landsmót UMFÍ 50+ er mjög skemmtilegt verkefni. Keppnisskapið er auðvitað fyrir hendi og margir mæta með það fyrir augum að ná sér í gullverðlaun, sem er gott og gilt meðan aðrir mæta til þess að vera með og hafa gaman af. Það er pláss fyrir alla og allir geta verið með á eigin forsendum. Ekki þarf að vera meðlimur í íþróttafélagi til þess að vera með og ekki þarf heldur að vera nein íþróttahetja, þó þær séu auðvitað velkomnar. Það eru einfaldlega allir velkomnir í Neskaupstað um næstu helgi,“ segir Ómar.Landsmót 50+ fer fram í Neskaupstað dagana 28. til 30. júní. Hægt er að skrá sig hér.Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is.UMFí er einnig á facebook og á InstagramÞessi kynning er unnin í samstarfi við UMFÍ
Heilsa Íþróttir Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn „Gerið hjartastuðtækið klárt“ – úrslit í Leikið um landið Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Handgerðir leirpottar fyrir kröfuharða kaupendur Nutrilenk liðbætiefnin breyta öllu á álagstímum „Bannað að hvísla að dómaranum!!“ Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Sjá meira